Formúla 1

Marussia bjargað á elleftu stundu?

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Verður Marussia með 2014 bíl sinn(MR03) áfram í notkun?
Verður Marussia með 2014 bíl sinn(MR03) áfram í notkun? Vísir/Getty
Tekist hefur að blása lífi í vonarglæður yfirmanna Marussia liðsins um að það takist að bjarga liðini. Hætt hefur verið við loka uppboð á eignum liðsins.

Þrátt fyrir að liðið hafi verið lýst gjaldþrota í október hafa stjórnendur þess, Graeme Lowdon og John Booth ekki gefið upp vonina. Þeir hafa unnið hörðum höndum að því að finna styrktaraðila sem geta gert liðinu kleift að snúa aftur til keppni.

Árangur þessara umleitana þeirra hafa nú hugsanlega loks borið árangur. Hópur fjárfesta sýndi nægja elju til að hætt hefur verið við uppboð sem fara átti fram á miðvikudaginn. Slíkt kemur fram í stuttri yfirlýsingu frá slitastjórn þrotabús liðsins.

Stóð til að selja á uppboðinu bíla síðasta árs, varahluti og annan búnað liðsins. Ef uppboðið hefði farið fram hefði verið ansi erfitt að púsla liðinu saman aftur, sérstaklega ef búnaður þess hefði dreifst til margra eigenda.

Það er nú þegar orðið of seint að hefja þróun bíls fyrir komandi tímabil. Liðið myndi þá vera uppá það komið að FIA og önnur lið samþykktu að það notaði bíl síðasta árs.

Þar að auki hafa margir fyrrum starfsmenn Marussia fundið önnur störf og því þyrfti liðið að leggjast í miklar mannaráðningar til að vera í keppnisformi.

Helsta ástæða fyrir áhuga fjárfesta á að kaupa hið gríðarlega skuldsetta lið er sú að ef liðið tekur þátt í ár á það rétt á greiðslu allt 35 milljónum punda á næstu tímabilum (tæplega 7 milljörðum króna). Það er því aldrei að vita, kannski rís Marussia úr öskunni og verður með eftir 54 daga í Ástralíu.


Tengdar fréttir

Jules Bianchi ók of hratt

Formúlu 1 ökumaðurinn Jules Bianchi varð fyrir alvarlegum höfuðmeiðslum þegar hann lenti á vinnuvél í rigningu í japanska kappakstrinum.

Marussia setur Chilton á bekkinn

Marussia liðið í Formúlu 1 hefur ákveðið að Alexander Rossi aki fyrir liðið í belgíska kappakstrinum í stað Max Chilton. Samningaviðræður á milli Marussia og Chilton virðast hafa strandað.

Haas: Fyrstu fimm árin snúast um að komast af

Gene Haas segir að fyrstu fimm árin hjá nýju formúlu 1 liði hans muni snúast um að komast af. Hann ætlar að læra af mistökum annarra nýrra liða í gegnum tíðina.

Bílskúrinn: Ballið í Brasilíu í bland við framtíðarspá

Næst síðasta keppni tímabilsins er búin. Lewis Hamilton leiðir enn þrátt fyrir að Nico Rosberg hafi unnið í Brasilíu. Hvað þarf að gerast til að Rosberg verði meistari, hver sagði hvað um framtíð Formúlu 1 og hver ætlar að hjálpa hverjum að verða heimsmeistari?

Stóru liðin ætla að skaffa litlu liðunum bíla

Bernie Ecclestone segir að samningur sem gerður hefur verið við stærri liðin í Formúlu 1 gæti leitt til þess að þau skaffi minni liðunum bíla. Þetta gæti komið til ef allt stefnir í mikla fækkun keppnisliða.

Upplýsingum um skuldir Marussia liðsins lekið

Marussia liðið skuldaði lánadrottnum andvirði rúmlega 6 milljarða króna samkvæmt skjölunum þegar það var lýst gjaldþrota. Upplýsingar um skuldir liðsins voru á skjölum sem lekið var úr þrotabúinu.

Marussia missir af næstu keppni

Bernie Ecclestone, einráður formúlu 1 hefur staðfest að Marussia muni, ásamt Caterham liðinu missa af bandaríska kappakstrinum næstu helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×