Lífið

Martraðarsundlaug fyrir lofthrædda

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hrikalegt fyrir lofthrædda.
Hrikalegt fyrir lofthrædda.
Það glíma margir við lofthræðslu og sumir eru einnig nokkuð vatnshræddir. Það er því ekki hægt að segja að þessi sundlaug sé fyrir fólk sem glímir við þessa hræðslu en hún er á 42. hæð og botninn á henni er úr gleri.

Þegar maður stendur því ofan í lauginni er hægt að horfa niður á götuna sem er 42 hæðum fyrir neðan mann.

Laugin er í rúmlega 150 metra hæð í miðborg Houston í Texas. Glerið er tuttugu sentímetrar breitt og nær laugin þrjá metra út fyrir húsið sjálft.

Hér að neðan má sjá myndband af lauginni.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×