Bíó og sjónvarp

Martraðarkennd ferð vandræðaunglinga

Þórður Ingi Jónsson skrifar
Ljúfsár og dulræn - Þau hafa flúið er ansi óútreiknanleg mynd.
Ljúfsár og dulræn - Þau hafa flúið er ansi óútreiknanleg mynd.
Þau hafa flúið (He ovat paenneet)

Leikstjóri: J.-P. Valkeapää

IMDB 6,9

Þau hafa flúið er nýjasta mynd finnska leikstjórans J.-P. Valkeapää sem er rísandi stjarna í norræna kvikmyndaheiminum. Í byrjun myndarinnar kynnumst við ungum manni að nafni Joni, sem flúði herskyldu og er sendur á unglingaheimili. Hann á erfitt uppdráttar af því að hann glímir við stam en líf hans tekur miklum breytingum þegar hann kynnist pönkaranum og vandræðagemsanum Raisu á heimilinu.

Þau ákveða að flýja stofnunina á bílnum hans Joni. Þau brjótast inn í sumarbústaði og stela neyðarvistum (áfengi og vímuefnum), kynnast ýmsum skrautlegum karakterum og halda í leit að ömmu Raisu. Myndin tekur síðan afar óvænta stefnu sem verður ekki lýst frekar.

Þau hafa flúið er merkileg mynd sem sveiflast fram og til baka á milli þess að vera ljúfsár vegamynd, beitt samfélagsádeila og martraðarkennd hryllingsmynd. Myndin er tekin upp á næstum expressjónískan hátt þar sem formið endurspeglar efnið og skotin draga mann beint inn í hugarheim aðalpersónanna.

Myndin fær plús í kladdann fyrir að vera afar óútreiknanleg en maður veit aldrei almennilega hvert hún fer næst. Yfir myndinni er líka dulrænn bragur – það búa andar í skóginum og náttúrunni en draumaatriðin í myndinni eru mjög mystísk og grípandi.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×