Bíó og sjónvarp

Martin Scorsese hjá HBO

Marti Scorsese leikstýrir þætti á HBO.
Marti Scorsese leikstýrir þætti á HBO. Vísir/Getty
Martin Scorsese mun leikstýra fyrsta þættinum í nýrri sjónvarpsþáttaröð frá HBO sem fjallar um rokksenuna á áttunda áratugnum í New York þar sem kynlíf og eiturlyf voru áberandi.

Scorsese verður einnig framleiðandi þáttanna en með honum við gerð þeirra eru Mick Jagger, söngvari The Rolling Stones, og handritshöfundurinn Terence Winter.

Helstu leikarar verða Bobby Cannavale, Ray Romano og Olivia Wilde og í aukahlutverkum verða Juno Temple og Andrew „Dice“ Clay.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×