Körfubolti

Martin: Þetta var eitt það rosalegasta sem ég hef upplifað

Óskar Ófeigur Jónsson í London skrifar
Martin Hermannsson átti frábæran leik gegn Bretum hér heima.
Martin Hermannsson átti frábæran leik gegn Bretum hér heima. Vísir/Vilhelm
Martin Hermannsson, 19 ára bakvörður íslenska liðsins, hefur skorað 15,5 stig að meðaltali í fyrstu tveimur leikjum Íslands í undankeppni EM og hann verður stóru hlutverki á móti Bretum í Koparhöllinni í kvöld.

„Þetta er hrikalega spennandi en ég er óvenju rólegur í dag. Það breytist kannski á morgun (í dag) því þá kemur smá fiðringur sem er bara jákvætt," sagði Martin Hermannsson en með sigri tryggir íslenska liðið sér annað sætið í riðlinum og mögulega sæti á EM.

Martin fékk að byrja inn á í Bosníuleiknum á sunnudagskvöldið en þar spilaði íslenska liðið fyrir framan troðfulla höll í Tuzla.

„Þetta var eitt það rosalegasta sem ég hef upplifað. Þeir voru byrjaðir að syngja einum og hálfum tíma fyrir leik og ég hef aldrei upplifað svona áður," sagði Martin og bætti við:

„Eftir þetta þá erum við tilbúnir í allt, það er alveg klárt mál. Það er alveg sama hvernig fólkið verður hér því við erum klárir fyrir allt," sagði Martin.

„Það er mjög jákvætt að fá Jón aftur inn í liðið. Hann styrkir hópinn," sagði Martin en hann og fleiri leikmenn í liðinu mega ekki taka fótinn af bensíngjöfinni þótt að Jón Arnór Stefánsson sé mættur.

„Við gefum ekkert eftir þótt að Jón sé kominn. Hann kemur inn og á að vera ákveðin viðbót. Eins góður og hann er þá þurfa hinir að vera tilbúnir og klárir í þetta," sagði Martin sem missir níuna til Jóns Arnórs.

„Ég er ekkert að svekkja mig á því og það er bara eðlilegt að hann fái níuna sína. Ég veit ekki ennþá hvaða númer ég fæ. Ég tek það sem er í boði og er alveg sama," sagði Martin léttur.

„Ég viðurkenni alveg að þetta er stærsta stundin í lífi mínu sem körfuboltamanns en maður er orðinn einn af þessum hóp og við gerum þetta saman allir sem einn," sagði Martin.


Tengdar fréttir

Logi: Við erum allir eins og bræður

Logi Gunnarsson, leikjahæsti leikmaður íslenska landsliðsins, er harður á því að leikurinn á móti Bretum í kvöld sé sá stærsti á ferlinum ásamt því að hrósa liðsheildinni í íslenska landsliðinu.

Haukur Helgi: Við ætlum okkur á EM

Haukur Helgi Pálsson ætlar ekki að láta meiðsli stoppa sig frá því að spila leikinn gegn Bretum í London í kvöld. Haukur lenti í töluverðum vandræðum út í Bosníu á dögunum vegna meiðsla og vinnuvandræða en liðsfélagar hans stigu upp í fjarveru hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×