Körfubolti

Martin: Jón Arnór er fyrirmyndin mín

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martin Hermannsson varð Íslandsmeistari með KR í vor.
Martin Hermannsson varð Íslandsmeistari með KR í vor. Vísir/Andri Marinó
Ísland mætir Bretlandi í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2015 í körfubolta í Laugardalshöllinni í kvöld, en leikurinn hefst klukkan 19:00.

Íslenska liðið verður án Jóns Arnórs Stefánssonar, sem dró sig út úr landsliðshópnum vegna tryggingamála. Ljóst er að aðrir leikmenn þurfa að stíga upp í fjarveru Jóns Arnórs, þar á meðal Martin Hermannsson, besti leikmaður Dominos deildarinnar á síðasta tímabili.

„Þetta er auðvitað mikil missir,“ sagði Martin um fjarveru Jóns Arnórs í samtali við Vísi.

„Ekki bara fyrir liðið, heldur þjóðina alla. Jón Arnór er búinn að vera fyrirmyndin mín síðan ég byrjaði í þessu og maður er búinn að læra mikið af honum.

„En við erum með fullt af frambærilegum leikmönnum og það opnast möguleiki fyrir aðra - og þar er ég meðtalinn. Ég er tilbúinn í þetta verkefni. Á maður ekki að segja að ég komi í staðinn fyrir hann,“ sagði Martin sem hefur fengið stærra hlutverk með landsliðinu að undanförnu.

Í æfingaleikjunum gegn Lúxemborg í síðustu viku fékk Martin sinn skerf af mínútum. Í fyrri leiknum lék hann í 23 mínútur, skoraði 11 stig og gaf fjórar stoðsendingar, og í seinni leiknum lék Martin í 22 mínútur og skoraði tíu stig.

„Það eru smá viðbrigði að fá fleiri mínútur, en maður er búinn að þekkja þessa gaura síðan maður man eftir sér. Að spila með landsliðinu er alltaf heiður og maður leggur sig alltaf allan fram.

„Það munur miklu um fjarveru Jóns Arnórs og Jakobs (Arnar Sigurðarsonar), en allir hérna eru árinu eldri og við eigum fullan séns í Bretana,“ sagði Martin en hvernig ætlar íslenska liðið að fara að því að vinna leikinn í kvöld?

„Við þurfum að berjast og spila fyrir hvorn annan og vona að við hittum úr þriggja stiga skotunum okkar. Ef við erum í kringum 45% þriggja stiga nýtingu, þá getur allt gerst.

„Við eigum klárlega möguleika. Við erum allir fullir einbeitingar og við getum unnið Bretana,“ sagði Martin að lokum.


Tengdar fréttir

Jón Arnór verður ekki með í Lúxemborg

Besti körfuknattleiksmaður landsins fékk frí vegna persónulegra ástæðna og fer því ekki með í æfingaferðina en mætir til leiks í undankeppni EM.

Jón Arnór: Rétt ákvörðun þó að hún sé mjög erfið

Jón Arnór Stefánsson verður ekki með íslenska landsliðinu í undankeppni EM sem hefst með heimaleik við Bretland um næstu helgi og Valtýr Björn Valtýsson ræddi við kappann í kvöldfréttum Stöðvar 2 og fékk að vita af hverju besti leikmaður landsliðsins getur ekki spilað þessa leiki.

Fimm leikmenn landsliðsins að fylgja í fótspor pabba

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta er nú statt út í Lúxemborg þar sem liðið spilar tvo æfingaleiki við heimamenn en þetta er lokaundirbúningur íslenska liðsins fyrir Evrópukeppnina. Ísland vann sannfærandi fjórtán stiga sigur í fyrsta leiknum.

Pavel: Verðum að gleyma að Jón Arnór sé til

Ísland mætir Bretlandi í undankeppni Evrópumótsins í körfuknattleik á sunnudaginn og segir Pavel Ermolinskij að það sé sárt að missa Jón Arnór Stefánsson úr hópnum.

Haukur Helgi: Ég er að fara til hans Peters í LF Basket

Landsliðsmaðurinn Haukur Helgi Pálsson er búinn að ganga frá sínum málum en hann mun spila með sænska úrvalsdeildarliðinu LF Basket í vetur. Peter Öqvist, fyrrum þjálfari íslenska karlalandsliðsins, tók við liði LF Basket í sumar og hóaði í einn öflugasta leikmann íslenska landsliðsins.

Logi: Forréttindi fyrir mig

Logi segir að liðið muni sakna Jóns Arnórs, en að ábyrgðin færist yfir á aðra.

Þetta gerðist hjá Jóni Arnóri fyrir átta árum

Jón Arnór Stefánsson, besti leikmaður íslenska körfuboltaliðsins, verður eins og allir vita fjarri góðu gamnni þegar íslenska liðið mætir Bretum í Laugardalshöllinni á sunnudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×