Körfubolti

Martin: Erum ekki að spila sem lið

Smári Jökull Jónsson skrifar
Israel Martin segir sínum mönnum til í leik fyrr í vetur.
Israel Martin segir sínum mönnum til í leik fyrr í vetur. vísir/ernir
Israel Martin þjálfari Tindastóls vildi frekar einbeita sér að þeim leikjum sem framundan eru heldur en tapleiknum gegn Haukum í kvöld. Hann var svekktur með tapið enda urðu hans menn af 2. sætinu í deildinni.

„Mér fannst vanta einbeitingu hjá báðum liðum í byrjun og það var töluvert af mistökum. Í seinni hálfleik fengum við alvöru körfuboltaleik og bæði lið reyndu að ná sigrinum. Haukar höfðu ekkert að spila fyrir á meðan við vildum ná 2. sætinu. Við náðum því ekki og það er bara þannig,“ sagði Martin í samtali við Vísi eftir leik í Hafnarfirði í kvöld.

„Ef við endum í 3. sæti er það vegna þess að við eigum skilið að vera þar, það er mjög einfalt.“

Tapið í kvöld og sigur Stjörnunnar á KR þýðir að Stólarnir falla niður í 3. sætið og mæta Keflavík í 8-liða úrslitum.

„Okkar leið er að taka einn leik í einu. Það lítur út fyrir að við munum mæta Keflavík og við höfum heimaleikjaréttinn. Við þurfum að nota hann og sjá hvað gerist. Það sem ég er að hugsa um núna er að fá leikmenn tilbúna í fyrsta leikinn gegn Keflavík,“ bætti Martin við.

„Þeir eru með einn besta skotbakvörðinn í deildinni, einn besta erlenda leikmenninn og þar að auki með góða skotmenn. Þeir eru gott lið og líkamlega sterkir. Þetta verður mikil barátta fyrir okkur. Við höfum trú á okkar varnarleik og ákveðni."

Martin talaði um að hans menn hefðu ekki spilað sem lið í leiknum í kvöld og sagði að það þyrfti að vinna í því vandamáli fyrir úrslitakeppnina.

„Ég hef áhyggjur af því að við séum ekki að spila nógu mikið eins og lið og það þurfum við að laga. Ég held að við verðum tilbúnir, ég er viss um strákarnir muni berjast og að við verðum tilbúnir fyrir úrslitakeppnina."

"Við erum með eina bestu stuðningsmennina í deildinni og heimavöllurinn er lykillinn fyrir okkur. Ég veit ekki hversu langt við förum en heimavöllurinn verður mikilvægur og við munum fá 100% stuðning þar,“ sagði Martin og sagði að ekki væri ljóst hvenær skyttan öfluga Chris Caird myndi snúa til baka en hann er að jafna sig eftir aðgerð á hné.

„Í gær byrjaði hann að skokka en snerti ekki boltann. Í augablikinu einbeiti ég mér að því sem ég er með í höndunum akkúrat núna. Við munum gera okkar besta, ef Chris verður klár verður það bónus fyrir okkur. En ef hann er ennþá meiddur þá getum við ekki treyst á hann,“ sagði Israel Martin þjálfari Tindastóls að lokum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×