Lífið

Martha Stewart hjólar í Gwyneth Paltrow

Martha Stewart og Gwyneth Paltrow
Martha Stewart og Gwyneth Paltrow Vísir/Getty
Sjónvarpsdrottningin Martha Stewart, lét leikkonuna Gwyneth Paltrow heyra það í nýlegu viðtali við tímaritið Porter magazine.

„Hún þarf bara að þegja. Hún er kvikmyndastjarna. Ef hún væri örugg með ferilinn sinn, þá væri hún ekki að reyna að vera Martha Stewart,“ sagði hún.

Ummælin lét Martha falla vegna lífsstílssíðunnar Goop, sem Gwyneth Paltrow hefur haldið úti síðan árið 2008. Eins og Stewart, selur Paltrow vörur inn á heimilið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×