Lífið

Marta Stewart og Snoop Dogg gera allt vitlaust í nýjum matreiðsluþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Martha og Snoop er sérstakt par.
Martha og Snoop er sérstakt par.
Föstudaginn 3. mars hefur göngu sína nýr matreiðsluþáttur, Martha & Snoop's Potluck Dinner Party, á Stöð 2 þar sem Marthu Stewart og rapparinn Snoop Dogg fara með aðalhlutverkin.

Þættirnir verða á dagskrá klukkan 19:20, strax á eftir fréttum. Um er að ræða beittan og skemmtilegan þátt í umsjón eldhúsdrottningarinnar og rapparans sem eru eins ólík og hugsast getur en eiga það sameiginlegt að hafa mikið dálæti á mat.

Í þættinum fá þau til sín gesti sem koma gjarnan með sínar eigin veitingar svo úr verður Pálínuboð. Martha og Snoop eiga það til að fara yfir strikið og er ekkert heilagt í þessum geggjuðu matarboðum þar sem boðið er upp á hressilegar samræður og veglegt hlaðborð leikja, uppskrifta og tónlistaratriða.

Þættirnir hafa fengið frábærar viðtökur vestanhafs og verður fróðlegt að fylgjast með.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×