Lífið

Marta María og Páll Winkel nýtt par?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þau eru flott saman.
Þau eru flott saman. vísir/anton brink
Marta María Jónasdóttir, ritstjóri Smartlandsins á mbl.is, og Páll Winkel, fangelsismálastjóri eru nýtt par. Þetta kemur fram í frétt á vef DV.

Þar segir að orðrómur sé á kreiki um málið en í samtali við Vísi vildi Marta María ekki tjá sig um málið. Hún hvorki játaði, né neitaði. 

Marta María gerði á dögunum úttekt um tíu heitustu piparsveina landsins og var Páll Winkel á þeim lista. 

Marta María hefur nýlega fest kaup á húsi í Ljósalandinu en heimildarmenn DV segja að hún geisli hreinlega af hamingju þessa dagana.

Marta María og Jóhannes Ingimundarson, sjónfræðingur, skildu eftir sex ára hjónaband árið 2013. Saman eiga þau tvo drengi. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×