Marsipan-Nougat smákökur

Vísir Jólavefur 01. nóvember 2011 03:13
Uppskriftina að þessum girnilegu smákum sendi Karen Þórsteinsdóttir.

Marsipan-Nougat smákökur:

1/2 kg. Marsipan 3 Eggjahvítur (óþeyttar) 125gr. Flórsykur 100gr. Nougat

Marsipan,eggjahvítur og flórsykur hrært í potti við vægan hita( bara svo marsipanið verði mjúkt rúmlega líkamshiti)

Hnoðað með höndunum.
Síðan er massinn settur í sprautupoka og sprautaðir litlir hringir á bökunarplötu sem klædd er bökunarpappír. Lítill biti af nougati settur í miðju hringsins og síðan sprautaður marsipankross yfir nougatið.

Bakað við 225° C í 5-7 mínútur.

Fleiri fréttir - Jólavefur

Þú ert hér: Forsíða / Jólavefur / Marsipan-Nougat smákökur