Lífið

Marnie leikur Peter Pan í jólaútsendingu NBC

Allison Williams
Allison Williams Vísir/Getty
Allison Williams, best þekkt sem Marnie Michaels úr þáttaröðinni Girls kemur til með að leika Peter Pan í Peter Pan Live sem verður sýnt á NBC þann fjórða desember næstkomandi.

Í fyrra setti sjónvarpsstöðin upp The Sound of Music með Stephen Moyer og Carrie Underwood, en 18,6 milljónir manna horfðu á þá útsendingu. 

Stjórnarformaður NBC, Robert Greenblatt hafði áður gefið í skyn að Peter Pan yrði leikinn af manni, en ljóst er að ekkert varð úr því.

Rödd Williams kemur nokkuð við sögu í Girls, en söngferill Marnie er hálfgerður brandari í þáttaröðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×