Fótbolti

Markvörður Hollands sendir strákunum okkar heillaóskir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Tim Krul verður frá næstu mánuðina.
Tim Krul verður frá næstu mánuðina. vísir/getty
Tim Krul, landsliðsmarkvörður Hollands í fótbolta, sendir sínum mönnum og strákunum okkar heillaóskir fyrir leiki kvöldsins á Twitter-síðu sinni.

Holland þarf sárlega að vinna Tékkland í kvöld til að eiga möguleika á að komast í umspil um sæti á EM, en á sama tíma þurfa þeir að treysta á að Ísland vinni Tyrkland á útivelli í kvöld.

Fær Tyrkland í eitt stig gegn Íslandi á heimavelli sínum í kvöld verður Holland, sem fékk brons á síðasta heimsmeistaramóti, ekki með í Frakklandi næsta sumar.

„Gangi ykkur vel í kvöld strákar,“ skrifar Krul til sinna manna á Twitter og birtir mynd af appelsínugulu ljóni. „Gangi Íslandi vel. Þrjú stig gegn Tyrklandi,“ bætir hann við.

Krul getur sjálfur ekkert gert í málunum þar sem han sleit krossband í síðasta leik Hollands gegn Kasakstan.


Tengdar fréttir

Svona kemst Tyrkland beint á EM

Tyrkland þarf á sigri að halda gegn Íslandi en með hagstæðum úrslitum gæti það dugað til að sleppa við umspilið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×