Formúla 1

Marko: Þetta voru mannleg mistök

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír fyrstu menn dagsins. Brosið hvarf af vörum hins síbrosandi Daniel Ricciardo.
Þrír fyrstu menn dagsins. Brosið hvarf af vörum hins síbrosandi Daniel Ricciardo. Vísir/Getty
Lewis Hamilton ók vel í dag. Hann ræsti þriðji og endaði á að vinna keppnina. Mannleg mistök hjá Red Bull kostuðu Daniel Ricciardo keppnina. Hver sagði hvað eftir keppnina?

„Það var ótrúlega gaman að þetta fór svona. Ég var búinn að biðja fyrir þessu og þetta gerðist. Skilaboð dagsins eru að gefast aldrei upp. Ég vil óska Sergio [Perez] og Daniel [Ricciardo] til hamingju með frábæran akstur um helgina. Þeir mega vera stoltir,“ sagði hæstánægður Hamilton á verðlaunapallinum.

„Við hefðum ekki átt að hleypa svona mikilli spennu í þetta. Þetta eru tvær keppnir í röð sem þjónustuhléin bregðast. Ég hef enga útskýringu á því hvers vegna dekkin voru ekki komin í pit-boxið. Ég var kallaður inn, þetta var ekki mín ákvörðun svo liðið hefði átt að vera tilbúið“ sagði niðurlútur Ricciardo á verðlaunapallinum.

„Það er frábært að ná verðlaunapalli í Mónakó í þessum aðstæðum. Ég vil tileinka Vijay Mallya þessi verðlaun. Hann er búinn að sína ótrúlegan styrk og stuðning þrátt fyrir allt sem hann er að ganga í gegnum,“ sagði Sergio Perez á verðlaunapallinum. Hann vísaði til þeirra lögfræðilegu vandræða sem Mallya hefur verið að glíma við undanfarið.

„Þetta voru mannleg mistök. Við munum rannsaka ástæður þeirra í þaula. Eina sem ég get gert núna er að biðja Daniel [Ricciardo] afsökunar,“ sagði Dr. Helmut Marko yfirmaður ökumannsmála hjá Red Bull um þjónustuhléið sem kostaði Ricciardo sigur í keppninni.

Perez ók vel í dag.Vísir/Getty
„Við settum upp áhættusama keppnisáætlun fyrir Lewis sem skilaði árangri. Báðir bílar voru að glíma við vandræði. Okkur tókst ekki að hita upp dekkin og Nico virðist hafa fundið meira fyrir því en Lewis,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.

„Ég er hissa á þessari hegðun bílsins. Við vorum að glíma við umferð og vandræði í þjónustuhléum. Ég var langt frá því að halda uppi sama hraða og Lewis og því var ákvörðunin einföld á þessu augnabliki. Það hefur alltaf verið regla hjá okkur ef annar er hægari þá hleypir hann hinum fram úr,“ sagði Nico Rosberg sem var vonsvikinn með dagsverkið.

„Við höfðum í alvörunni trú á því að við værum í góðum málum hér um helgina. Við hefðum meira að segja átt að geta betur með Nico [Hulkenberg]. Ég hef trú á að við höldum í Sergio [Perez] eftir tímabilið,“ sagði Bob Fernley, keppnisstjóri Force India.

„Það er alltaf gott að ná góðri keppni. Þessi var skemmtileg. Við fáum aukið sjálfstraust eftir svona árangur og við höfum trú á að við séum á réttri leið, en þessi braut er auðvitað einstök svo það er ekki hægt að lesa of mikið í þessa niðurstöðu,“ sagði Fernando Alonso sem varð fimmti í dag á McLaren bílnum.


Tengdar fréttir

Ricciardo: Ég vissi að við ættum að geta þetta

Daniel Ricciardo á Red Bull náði í sinn fyrsta ráspól í dag. Hann var fljótastur í tímatökunni í Mónakó, sem er ein sú mikilvægasta á keppnisdagatalinu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

Red Bull brýnir hornin í Mónakó

Lewis Hamilton varð fljótastur á Mercedes á fyrri æfingunni fyrir Mónakó kappaksturinn í gær, Daniel Ricciardo á Red Bull var fljótastur á seinni æfingunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×