Fótbolti

Markaveisla á Króknum

Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar
vísir/anton
Tindastóll og BÍ/Bolungarvík efndu til markaveislu á Sauðárkróki þar sem gestirnir að vestan unnu 6-4 sigur í tíu marka leik í 1. deild karla í fótbolta.

Tindastóll er í lang neðsta sæti deildarinnar með aðeins þrjú stig og þurfti liðið sárlega á sigri að halda í dag en náði honum ekki.

BÍ/Bolungarvík var í næst neðsta sæti fyrir leikinn en lyfti sér upp fyrir Grindavík með sigrinum og er nú í 10. sæti með 14 stig líkt og KV og Haukar en lakari markatölu.

Staðan í hálfleik var 3-1 fyrir BÍ/Bolungarvík en Tindastóll náði þrívegis að minnka muninn í eitt mark í seinni hálfleik en BÍ/Bolungarvík svarði ávallt og tryggði sér því mikilvægan sigur í fallbaráttunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×