Enski boltinn

Markametið féll í Stoke

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Wayne Rooney kom Manchester United til bjargar þegar liðið sótti Stoke City heim á laugardaginn. Rooney kom inná sem varamaður og jafnaði metin með frábæru skoti beint úr aukaspyrnu þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Lokatölur 1-1 á Bet365 vellinum.

Þetta var ekki bara eitthvað mark, heldur 250. mark Rooneys fyrir United og hann er nú orðinn markahæsti leikmaður í sögu félagsins. Rooney jafnaði markamet Sir Bobbys Charlton í bikarleik gegn Reading fyrir tveimur vikum og sló svo metið núna á laugardaginn.

„Ég væri að ljúga ef ég segðist ekki vera svekktur með að missa metið. Hins vegar er ég hæstánægður fyrir hönd Rooneys. Hann á skilið að vera í sögubókunum,“ sagði Charlton eftir leikinn gegn Stoke. Rooney hefur ekki bara slegið markamet Charltons hjá United heldur einnig hjá enska landsliðinu.

Þótt Rooney hafi látið verulega á sjá á undanförnum misserum og sé ekki lengur fastamaður í liði United er ekki hægt að horfa framhjá því að maðurinn hefur átt frábæran feril. Rooney hefur unnið allt sem hægt er að vinna með United og er bæði markahæsti leikmaður í sögu félagsins og enska landsliðsins. Og þegar hann leggur skóna á hilluna verður hann væntanlega leikjahæsti leikmaður í sögu enska landsliðsins. Það er ekki slæm arfleið hjá Rooney sem kom 18 ára gamall til United árið 2004. Enginn í leikmannahópi United hefur verið lengur hjá félaginu en Rooney.

„Þetta skiptir mjög miklu máli. Þetta er mikill heiður og ég er mjög stoltur. Það er erfitt að vera yfir sig glaður núna vegna úrslita leiksins en heilt yfir er þetta mikill heiður,“ sagði Rooney eftir leikinn sögulega gegn Stoke. Það var sautjándi leikur United í röð án taps. Þrátt fyrir það virðist liðið fast í 6. sæti ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×