Enski boltinn

Markaleysi hjá Íslendingaliðunum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Björn Bergmann lék allan leikinn fyrir Wolves.
Björn Bergmann lék allan leikinn fyrir Wolves. vísir/getty
Íslendingaliðunum þremur í ensku B-deildinni mistókst öllum að skora í dag.

Björn Bergmann Sigurðarson lék allan leikinn í framlínu Wolves sem gerði markalaust jafntefli við Reading á útivelli.

Þetta var þriðji leikur Björns með Wolves í B-deildinni í vetur en hann er að komast aftur á ferðina eftir meiðsli.

Landsliðsfyrirliðinn Aron Einar Gunnarsson sat allan tímann á bekknum þegar Cardiff og MK Dons skildu jöfn, 0-0, á Cardiff City Stadium.

Jóhann Berg Guðmundsson var á sínum stað í byrjunarliði Charlton sem tapaði 0-1 fyrir Bristol City á heimavelli.

Jóhann Berg og félagar eru í botnsæti deildarinnar með 24 stig, þremur stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×