Fótbolti

Markalaust í Mónakó

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Getty
Monaco og PSG gerðu markalaust jafntefli í toppbaráttuslag í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta.

PSG var meira með boltann og áttu mun fleiri skot í átt að marki, en ekkert rataði í netið. Lokatölur 0-0.

 

Frönsku meistararnir í París eru því í öðru sæti með 53 stig, stigi á eftir Lyon, sem er í efsta sætinu. Monaco er í fjórða sætinu með 44 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×