Fótbolti

Markalaust í Ísrael

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn Kjartansson var á sínum stað í byrjunarliði Maccabi Tel Aviv sem gerði markalaust jafntefli við AZ Alkmaar á heimavelli í Evrópudeildinni í kvöld.

Viðar Örn var sprækur í fyrri hálfleik en fór illa að ráði sínu þegar hann klúðraði besta færi leiksins. Það bar minna á Selfyssingnum í seinni hálfleik og hann var tekinn af velli á 72. mínútu.

Í hinum leik D-riðils vann Zenit 2-1 sigur á Dundalk í Pétursborg.

Zenit er með fullt hús stiga eftir fjórar umferðir og er búið að vinna riðilinn. FH-banarnir í Dundalk eru í 2. sæti með fjögur stig, jafnmörg og Maccabi Tel Aviv en betri markatölu. AZ er svo í fjórða og neðsta sætinu með tvö stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×