Fótbolti

Markalaust hjá Ólafi Inga og félögum

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Ólafur Ingi Skúlason.
Ólafur Ingi Skúlason. Vísir/Getty
Ólafur Ingi Skúlason, landsliðsmaður í knattspyrnu, og félagar hans í Zulte-Waregem, gerðu markalaust jafntefli við Anderlecht á útivelli í meistaraumspilinu í belgísku úrvalsdeildinni í kvöld.

Sex efstu liðin í belgísku deildinni leika í umspili um titilinn og mætast heima og að heiman.

Standard Liege stendur best að vígi en liðið er í efsta sæti með 38 stig en Zulte er í öðru sæti eftir jafnteflið í kvöld með 37 stig.

Ólafur Ingi var í byrjunarliðinu og spilaði allan leikinn en hann nældi sér í gult spjald á 41. mínútu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×