Fótbolti

Markalaust hjá Ara og Hallgrími

Anton Ingi Leifsson skrifar
Ari Freyr í landsleik.
Ari Freyr í landsleik. vísir/andri marinó
Ari Freyr Skúlason og Hallgrímur Jónasson spiluðu báðir allan leikinn fyrir OB sem gerði markalaust jafntefli við SönderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu.

Mikið jafnræði var með liðunum og hvorugu liðinu tókst að koma boltanum í netið. Lokatölur 0-0.

SönderjyskE er í áttunda sætinu með 30 stig, en OB er sæti neðar með stigi minna. Liðin eru sjö og átta stigum frá fallsæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×