Íslenski boltinn

Markahetjan fékk nýjan samning

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir Guðjónsson, leikmaðu Fjölnis.
Þórir Guðjónsson, leikmaðu Fjölnis. vísir/pjetur
Fjölnir tilkynnti nú í morgun að félagið hefði gert nýjan tveggja ára samning við sóknarmanninn Þóri Guðjónsson.

Þórir var hetja Fjölnis er hann skoraði bæði mörkin í 2-1 sigri á Val í fyrstu umferð nýs tímabils í Pepsi-deild karla á Valsvellinum í gær.

Sjá einnig: Þórir skaut Val í kaf

Þórir er reyndar uppalinn Valsmaður og steig sín fyrstu spor í meistaraflokki með Hlíðarendafélaginu. Hann var lánaður til Leiknis í 1. deildinni sumarið 2011 en gekk svo í raðir Fjölnis árið 2013.

Gamli samningur Þóris átti að renna út í lok núverandi tímabils en Þórir mun að öllu óbreyttu taka að minnsta kosti eitt tímabil til viðbótar í Grafarvoginum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×