Viðskipti innlent

Markaðs­mis­notkunar­málið: „Menn stóðu bara frammi fyrir tveimur vondum kostum"

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ingólfur Helgason og Hreiðar Már Sigurðsson.
Ingólfur Helgason og Hreiðar Már Sigurðsson. vísir
Einar Pálmi Sigmundsson, sem var forstöðumaður eigin viðskipta Kaupþings frá apríl 2007 og þar til bankinn féll í október 2008, hefur orðið nokkuð tíðrætt um það við skýrslutöku fyrir dómi í dag að stjórnmálamenn, bankamenn og fleiri hér á landi hafi haft áhyggjur af því í upphafi árs 2008 að einhverjir vildu „taka íslenska bankakerfið niður.”

 

Einar er einn af ákærðu í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings og hefur setið fyrir svörum Björns Þorvaldssonar, saksóknara í morgun. Í einu símtala sem spilað var fyrir dómi ræðir Einar að því er virðist erfiða stöðu Kaupþings á markaði við Birni Sæ Björnsson, verðbréfasala hjá eigin viðskiptum, sem einnig er ákærður í málinu.

 

Í símtalinu segir Einar meðal annars:

 

„Menn stóðu bara frammi fyrir tveimur vondum kostum, sagði hann, annars vegar að láta þá bara félagið sunka og það hefði bara verið spírall sem hefði tekið allt með sér. [...] Eða að fara þessa leið, sem er pínu hættuleg og er að reyna að halda genginu sæmilegu.”

Ekki ólöglegt heldur áhættusamt

Saksóknari bað Einar um að útskýra þessi orð sín og af hverju þeir hafi þurft að halda genginu „sæmilegu.”

 

„Þarna er ég að vitna í samtal mitt við Ingólf. Hann er þessi „hann” sem ég minnist á. Ég skildi hann bara þannig að við ættum að vera með öflugan seljanleika, öfluga vakt í bréfunum,” svaraði Einar.

 

Hann útskýrði síðan hvað hann hefði átt við með því að leiðin væri „pínu hættuleg”:

 

„Þegar ég segi hættuleg þá er ég ekki að meina ólöglegt heldur að þetta sé áhættusamt. Það að hafa svona mikið af Kaupþingsbréfum hjá eigin viðskiputm hafði í för með sér tap á lækkandi markaði. Það er því áhættusamt að vera með þessa öflugu viðskiptavakt. Ég hefði ekki valið þessa leið en þeir völdu þessa leið. Þeir töldu greinilega að ávinningurinn væri meiri en tapið.”

Koma í veg fyrir brjálæðislegar sveiflur

Dómari spurði þá hverjir væru þessir „þeir”.

 

„Já, eða það er sem sagt Ingólfur. Hann verður svo að svara hvort það hafi verið einhverjir aðrir með,” svaraði Einar. Yfirmenn Ingólfs voru forstjórinn Hreiðar Már Sigurðsson og stjórnarformaðurinn Sigurður Einarsson.

 

Björn spurði svo hvort að Einar hafi verið í björgunaraðgerðum fyrir bankann.

 

„Ég hélt ekki að ég væri í björgunaraðgerðum og hef aldrei haldið því fram. Mér fannst þetta ekkert óeðlilegt þó ég hefði sjálfur ekki valið þessa leið því hún getur valdið fjárhagslegu tjóni.”

 

Hann var síðan spurður hvers vegna þetta hafi snúist svona mikið um gengi bréfa í bankanum. Svaraði Einar því til að það hafi verið til að koma í veg fyrir „þessar brjálæðislegu sveiflur.” Saksóknari sagði þá að “spírall” væru ekki sveiflur heldur einfaldlega lækkun og spurði hvort að væri verið að koma í veg fyrir spíralinn.

 

„Ég get ekki svarað fyrir þá,” sagði Einar þá.


Tengdar fréttir

„Ég hef ekkert vald í Kaupþingi”

Einar Pálmi Sigmundsson, forstöðumaður eigin viðskipta hjá Kaupþingi, var ekki alltaf klár á því hvaða skilaboð forstjórinn, Ingólfur Helgason, var að senda varðandi hlutabréfakaup bankans í sjálfum sér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×