Viðskipti innlent

Markaðsmisnotkunarmálið: Ákærði brotnaði niður í dómssal

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Pétur Kristinn Guðmarsson er hér lengst til vinstri ásamt nokkrum verjendum í málinu.
Pétur Kristinn Guðmarsson er hér lengst til vinstri ásamt nokkrum verjendum í málinu. vísir/gva
Það var létt yfir mönnum fyrr í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur við aðalmeðferð í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings. Nú er andrúmsloftið hins vegar tekið að þyngjast. Pétur Kristinn Guðmarsson, sem var verðbréfasali hjá eigin viðskiptum Kaupþings, og gefur nú skýrslu brotnaði til að mynda niður í réttarsalnum í dag.

 

Gera þurfti hlé á réttarhöldunum en skömmu áður hafði komið til snarpra orðaskipta á milli ákæruvaldsins og verjenda í málinu.

 

Deildu um herminn

Deildu þeir um notkun á kauphallarhermi ákæruvaldsins sem Vífill Harðarson, verjandi Péturs, sagði sérstakan saksóknara hafa eytt „hundruðum milljóna” í að láta útbúa. Maldaði Björn Þorvaldsson, saksóknari, í móinn og vildi ekki meina að svo miklu hefði verið varið í gerð hermisins.

 

Saksóknari varpar upp á skjá í réttarsalnum myndum úr kauphallarherminum en spilar ekki beint úr honum, eins og gert var í réttarhöldunum í markaðsmisnotkunarmáli Landsbankans.

 

Á herminum sjást kaup-og sölutilboð Péturs í hlutabréf Kaupþings á íslenska og sænska markaðnum. Verjandi hans og hann sjálfur hafa ítrekað farið fram á það að spilað sé beint úr herminum svo átta megi sig betur á markaðnum. Óskýrt sé til dæmis á myndunum hvað séu sölutilboð og hvað séu kauptilboð.

 

Verjandi Ingólfs blandaði sér í málið

Saksóknari hefur ekki viljað verða við þessari ósk ákærða og verjenda hans. Blandaði verjandi Ingólfs Helgasonar sér í málið og spurði dómarann hvort ákæruvaldið gæti meinað ákærðu að fá aðgang að gögnum málsins við aðalmeðferð.

 

Dómsformaður, Arngrímur Ísberg, vildi ekki meina að verið væri að meina ákærðu aðgang að gögnum málsins þó ekki væri spilað beint úr herminum. Verjendur gætu borið þau gögn undir skjólstæðinga sína þegar þeir myndu spyrja þá spurninga.

Gerðu hlé á meðferðinni

Hélt aðalmeðferðin svo áfram og fór saksóknari nokkuð hratt yfir sögu. Sýndi hann myndir úr herminum frá einstökum viðskiptadögum í júní 2008 og bar þau undir Pétur. Verjandi Péturs gagnrýndi þá hversu hratt saksóknari færi yfir. Hann hefði til að mynda ekki heyrt skjólstæðing sinn játa eða neita viðskiptum nú í smástund.

 

Spurði saksóknari ákærða þá hvort hann vildi að farið yrði hægar yfir sögu en svaraði Pétur því til að þetta væri í lagi svona. Eftir örstutta stund spurði Björn hvort að ákærði vildi taka hlé og þáði hann það enda virtist þetta allt taka mikið á hann.

 

Aðalmeðferð hélt áfram eftir kortershlé og hefur saksóknari nú borið einstaka viðskiptadaga í júní, júlí, ágúst og september 2008 undir Pétur.

Uppfært klukkan 15:21

Dómþingi var slitið klukkan 15:15 að ósk ákærða. Saksóknari hafði þá lokið við að spyrja hann og mun verjandi hans spyrja hann út úr í fyrramálið þegar aðalmeðferð heldur áfram.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×