Viðskipti innlent

Markaðsmisnotkunarmálið: „Hvernig eru límingarnar?”

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Múgur og margmenni er í héraðsdómi.
Múgur og margmenni er í héraðsdómi. Vísir/GVA
Nokkuð mikill fjöldi þeirra símtala sem saksóknari í markaðsmisnotkunarmáli Kaupþings, Björn Þorvaldsson, hefur spilað fyrir dómi í dag eru á milli tveggja ákærðu í málinu, þeirra Péturs Kristins Guðmarssonar og Ingólfs Helgasonar.

 

Pétur var verðbréfasali hjá eigin viðskiptum Kaupþings og er ákærður fyrir að hafa tekið þátt í allsherjarmarkaðsmisnotkun með því að kaupa mikið magn af hlutabréfum í bankanum með það að augnamiði að halda verði þeirra uppi.

 

Á Pétur að hafa gert þetta að undirlagi yfirmanna sinna, meðal annars Ingólfs Helgasonar, en hann var forstjóri Kaupþings á Íslandi.

„Ég var bara að fylgja stefnu minna yfirmanna

Saksóknari spurði Pétur, sem gefur skýrslu fyrir dómi í dag, út í símtöl hans og Ingólfs í upphafi árs 2008 og hvort þau væru dæmi um hversu vel hann fylgdist vel með viðskiptu með bréf í bankanum.

 

„Við fengum alveg fyrirmæli frá honum og hann virtist fylgjast með en ekkert bara Kaupþingi heldur líka öðrum fyrirtækjum sem við vorum að kaupa í,” svaraði Pétur.

 

Í einu símtalanna segir Ingólfur við Pétur að þeir verði „að verja þetta eins stíft og við getum eins og markaðirnar eru.” Björn spurði Pétur hvað Ingólfur átti við og sagði hann að Ingólfur yrði að svara því sjálfur. Skömmu síðar bætti hann svo við:

 

„Það var aldrei markmið mitt að verja eitt eða neitt gengi. Ég var bara að fylgja stefnu minna yfirmanna og veita seljanleika.”

Límingarnar

Þá var spilað símtal milli Ingólfs og Péturs frá því í byrjun mars 2008:

 

IH: „Hvernig eru límingarnar?”

PKG: „Hvað segirðu?”

IH: „Hvernig eru límingarnar?”

PKG: „Límingarnar?”

IH: „Já, límingarnar.”

PKG: „Þær eru bara góðar.”

IH: „Er það ekki?”

PKG: „Jú, jú, jú. [...] Mig vantar bara 2-3 kaffibolla.”

 

Pétur var spurður út í hvað „límingarnar” þýddu og var hann vægast sagt ósáttur við spurninguna:

 

„Mér finnst magnað að þú sért að gera þetta tortryggilegt. Ég nota bara þetta orðatiltæki til að spyrja félaga mína hvernig þeir hafi það. En þetta er bara í samræmi við annað hérna.”

 

Saksóknari spurði þá Pétur hvað hann hefði sagt og sá hann þá að sér:

 

„Nei, ekkert. Þetta var óviðeigandi. Afsakið.”

Var ekki vaknaður

Hér blandaði dómsformaður, Arngrímur Ísberg, sér í málið og spurði hvort þetta hefði verið grín. Pétur ætlaði þá að fara að útskýra fyrir honum hvað límingarnar þýddu en Arngrímur sagðist alveg skilja það. Hann væri að spyrja hvort þetta væri grín.

 

„Já, þetta var grín,” svaraði Pétur þá.

 

„Og þetta með kaffibollana, var það líka grín?” spurði dómsformaður.

 

„Já, eða þá var ég bara að meina að ég var ekki vaknaður því ég náði ekki strax hvað hann var að meina með límingunum,” svaraði Pétur.


Tengdar fréttir

Fordæmalaust mál gegn lykilmönnum Kaupþings

Aðalmeðferð í stóra markaðsmisnotkunarmálinu gegn níu starfsmönnum Kaupþings banka hófst í gær. Málið mun standa yfir í meira en mánuð. Sagðir hafa stundað blekkingar og sýndarviðskipti. Allir ákærðu neita sök.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×