Mark Viðars réði úrslitum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Viðar Örn hefur byrjað tímabilið af krafti.
Viðar Örn hefur byrjað tímabilið af krafti. vísir/andri marinó
Viðar Örn Kjartansson skoraði eina mark leiksins þegar Maccabi Tel-Aviv tók á móti Panionios í kvöld. Þetta var fyrri leikur liðanna í 3. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar.

Þetta var annað mark Viðars í Evrópudeildinni en hann var einnig á skotskónum í 3-1 sigri á KR í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppninnar í síðustu viku. Selfyssingurinn lagði svo upp mark í seinni leiknum gegn KR sem endaði með 0-2 sigri ísraelska liðsins.

Staðan var markalaus eftir fyrri hálfleikinn í Ísrael í dag en í upphafi þess seinni skoraði Viðar eina mark leiksins eftir sendingu frá Aaron Schoenfeld.

Maccabi er því í góðri stöðu fyrir seinni leikinn í Grikklandi eftir viku.

Viðar er á sínu öðru tímabili hjá Maccabi en hann var markahæsti leikmaður liðsins á síðasta tímabili.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira