Glamour

Mariah Carey sökuð um að eiga við Instagram mynd

Ritstjórn skrifar
Vísir/Getty
Mariah Carey skemmti sér greinilega vel á þakkagjörðarhátíðinni með fjölskyldunni sinni. Hún birti myndir frá hátíðinni en ein þeirra virtist ansi sérkennileg. 

Greinilegt er að Carey sé búin að eiga við myndina á tveimur stöðum, á öxlinni og lærinu. Fylgjendur hennar tóku strax eftir því og fóru að skilja eftir athugasemdir um það. Fótósjop á Instagrammyndum er afar algengt og því ætti ekkert endilega að koma á óvart að söngkonan hafi rétt svo lagað myndina sína. 

Hér fyrir neðan má sjá myndina umræddu og hvar búið er að eiga við hana.






×