Sport

María og Aron bikarmeistarar í karate

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Aron Anh og María Helga með verðlaunin að móti loknu.
Aron Anh og María Helga með verðlaunin að móti loknu. Mynd/Aðsend
Aron Anh Ky Huyn úr ÍR og María Helga Guðmundsdóttir úr Þórshamri urðu í gær bikarmeistarar í Karate eftir þriðja og síðasta bikarmót vetrarins sem fór fram í Dalhúsum.

Töluverð spenna var fyrir lokamótið enda staðan jöfn í bæði karla- og kvennaflokki en stigin eru reiknuð úr bæði kata- og kumite flokkinum.

Eftir þau þrjú mót sem mynduðu bikarmótaröðina þetta árið, stóð Aron Anh uppi sem sigurvegari og er því bikarmeistari karla í karate 2016 en næstir komu þeir Sæmundur Ragnarsson (Þórshamri) og Ólafur Engilbert Árnason (Fylki).

Í kvennaflokknum voru allar bestu karatekonur landsins mættar til að keppa í gær og varði María Helga naumt forskot sitt á lokamótinu.

Svana Katla Þorsteinsdóttir úr Breiðablik lenti í öðru sæti í kvennaflokki en Telma Rut Frímannsdóttir tók þriðja sætið.

Seinna um daginn fór fram seinna Bushido bikarmótið sem er mótaröð fyrir 12-17 ára unglinga, þar sem keppt er í kata og kumite.

Skipt er í aldursflokka en aldursflokkar ráðast af aldri keppenda þegar mótaröðin hefst að hausti.  Þau sem stóðu uppi sem sigurvegarar og Bushido bikarmeistarar eru;

 

Kata 12 ára barna: Daníel Dagur Bogason, Breiðablik

Kata 13 ára táninga: Kamila Buracewska, ÍR

Kata 14 ára táninga: Sigríður Hagalín Pétursdóttir, KFR

Kata 15 ára táninga: Mary Jane  Rafael, ÍR

Kata 16-17 ára unglinga: Aron Anh ky Huyn, ÍR

Kumite drengja 12-13 ára:  45 mínus, Omar Mohamed, Þórshamar

Kumite drengja 12-13 ára: 45 plús, Máni Hákonarson, Afturelding

Kumite pilta 14-15 ára: Ágúst Heiðar Sveinbjörnsson, Fylkir

Kumite pilta 16 og 17 ára: Máni Karl Guðmundsson, Fylkir

Kumite telpna 12 og 13 ára: Lóa Björg Finnsdóttir, Fylkir

Kumite stúlkna 14 og 15 ára: Iveta Ivanova, Fylkir

Kumite stúlkna 16 og 17 ára: Katrín Ingunn Björnsdóttir, Fylkir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×