Lífið

Margvísleg blæbrigði af þjóðlagatónlist

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Helgi og Snorri á Kexi hosteli þar sem þjóðlagahátíðin fer.
Helgi og Snorri á Kexi hosteli þar sem þjóðlagahátíðin fer. vísir/Valli
„Íslensk þjóðlagatónlist er kannski í hugum einhverra eldgömul íslensk danskvæði, eins og Goðmundur á Glæsivöllum sem við í Ríó tókum á sínum tíma. Það sem flutt verður á Reykjavík Folk Festival er af sama meiði. Auðvitað er alltaf þróun í tónlist og fram kemur bæði yngra og eldra tónlistarfólk með margvísleg blæbrigði af þjóðlagatónlist,“ segir Helgi Pétursson Ríótríósmaður sem er meðal þeirra sem stendur að þjóðlagahátíðinni Reykjavík Folk Festival, ásamt Snorra Helgasyni, syni sínum.

Helgi segir Reykjavík Folk Festival þá fimmtu í röðinni hér á landi á jafnmörgum árum. „Félagi minn og æskuvinur, Ólafur Þórðarson, byrjaði með hátíðina og þegar hann féll frá ákváðum við að halda merkinu á lofti,“ útskýrir hann.

„Tónlistarhátíðir af þessu tagi eru mjög vinsælar í Skandinavíu og Norður-Evrópu, líka í Winnipeg og víðar í Kanada og nú fengum við tækifæri til að bjóða tveimur vesturíslenskum tónlistarmönnum á hátíðina sem munu varpa ljósi á þjóðlagatónlistarhefð Kanada. Þeir kunna líka lög héðan sem þeir flytja í heimalandinu og þessi hátíð verður ugglaust til að auka á tengsl þeirra við uppruna sinn.“

Folk Festival fer fram í Gym-og Toniksalnum á Kexi hosteli við Skúlagötu. Hún hefst annað kvöld, fimmtudag, og stendur fram á laugardagskvöld. Fjórir listamenn koma fram á hverju kvöldi.

„Við höfum þrisvar áður verið á Kexinu, þar er skemmtilegur salur og eins og breiddin er mikil hjá flytjendunum hefur hið sama mátt segja um áheyrendahópinn á undanförnum árum,“ segir Helgi og fullyrðir að ekkert verði sparað til að skapa notalega og einlæga stemningu.

Spurður um verkaskiptinguna milli þeirra feðga svarar Helgi léttur í bragði: „Já, við fengum Snorra til að halda utan um þetta. Hann hefur raðað þessu upp. Ég er bara í snúningum og snatti.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×