Lífið

Margret vinnur með Opruh Winfrey

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Oprah til vinstri og Magret til hægri.
Oprah til vinstri og Magret til hægri. myndir/getty & valli
„Það er ekki á hverjum degi sem maður vinnur að merku verkefni með Opruh Winfrey!“ Þetta skrifar kvikmyndaframleiðandinn Margret Hrafnsdóttir á Facebook-síðu sína og hvetur vini sína til að fylgjast með framvindu mála.

Í samtali við Lífið á Visir.is vill Margret ekkert gefa upp um hvaða verkefni með spjallþáttadrottningunni er að ræða en Margret er með mörg járn í eldinum.

Hún og eiginmaður hennar, Jón Óttar Ragnarsson, eru með stórmyndina Kill the Poet í vinnslu sem fjallar um samband Steins Steinars við Louisu Matthíasdóttur og Nínu Tryggvadóttur. Þau eru einnig með myndina Visiting Professor í bígerð sem skartar stórum nöfnum frá Bretlandi í stærstu hlutverkum. Þá er Margret að framleiða spennumyndina Terra Infirma.

Jón Óttar og Margret framleiða einnig þættina Dulda Ísland sem hefja göngu sína á Stöð 2 innan skamms. Þá er Margret nýr verndari Fjölskylduhjálpar Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×