Sport

Margrét vann þrefalt á opna TBR mótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Margrét Jóhannsdóttir og Sunna Ösp Runólfsdóttir úr TBR efstar á palli eftir sigur í tvíliðaleik kvenna.
Margrét Jóhannsdóttir og Sunna Ösp Runólfsdóttir úr TBR efstar á palli eftir sigur í tvíliðaleik kvenna. Mynd/BSÍ
Margrét Jóhannsdóttir var sigursælust allra á fjórða mót Dominosmótaraðar Badmintonsambands Íslands, TBR Opið, sem fór fram um helgina.

Margrét vann þrjú gull á mótinu en keppt var í meistaraflokki, A- flokki og B-flokki. Margrét vann einliðaleikinn, tvíliðaleikinn og tvenndarleikinn hjá meistaraflokki kvenna. Kristófer Darri Finnsson vann tvöfalt í meistaraflokki karla.

Kristófer Darri Finnsson úr TBR sigraði einliðaleik karla eftir að hafa lagt Davíð Bjarna Björnsson úr TBR í úrslitum 21-19 og 21-18.

Margrét Jóhannsdóttir úr TBR vann einliðaleik kvenna eftir að hafa sigrað Örnu Karen Jóhannsdóttur úr TBR 21-13 og 21-19.

Tvíliðaleik karla unnu Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson úr TBR en þeir unnu í úrslitum Bjarka Stefánsson og Daníel Thomsen TBR eftir oddalotu 19-21, 21-10 og 21-12.

Tvíliðaleik kvenna unnu Margrét Jóhannsdóttir og Sunna Ösp Runólfsdóttir úr TBR en keppt var í riðli í greininni. Tvenndarleik í meistaraflokki unnu Daníel Thomsen og Margrét Jóhannsdóttir úr TBR en þau unnu í úrslitum Egil G. Guðlaugsson ÍA og Erlu Björg Hafsteinsdóttur úr BH 21-14 og 21-16.

Í A-flokki sigraði Bjarni Þór Sverrisson í einliðaleik karla. Hann vann í úrslitum Jón Sigurðsson úr TBR eftir oddalotu 21-19, 17-21 og 21-11. Einliðaleik kvenna vann Eyrún Björg Guðjónsdóttir úr BH. Hún vann Höllu Maríu Gústafsdóttur úr BH eftir oddalotu 21-17, 18-21 og 21-13.

Tvíliðaleik karla unnu Jón Sigurðsson úr TBR og Þórhallur Einisson úr Hamri en þeir unnu í úrslitum Aron Óttarsson og Guðjón Helga Auðunsson úr TBR 21-12 og 21-13.

Tvíliðaleik kvenna í A-flokki unnu Guðrún Björk Gunnarsdóttir úr TBR og Hrund Guðmundsdóttir úr Hamri en þær unnu í úrslitum Arndísi Sævarsdóttur og Svanfríði Oddgeirsdóttur úr Aftureldingu 21-15 og 21-16.

Tvenndarleikinn unnu Þórhallur Einisson og Hrund Guðmundsdóttir úr Hamri. Þau unnu Jón Sigurðsson og Guðrúnu Björk Gunnarsdóttur úr TBR í úrslitum 21-16 og 21-18.

Elís Þór Dansson úr TBR sigraði í einliðaleik karla í B-flokki en hann vann eftir oddalotu í úrslitaleik Brynjar Má Ellertsson úr ÍA 15-21, 21-18 og 21-13.

Ingibjörg Rósa Jónsdóttir úr UMFS vann Sunnu Karen Ingvarsdóttur úr Aftureldingu í úrslitaleik í einliðaleik kvenna eftir oddalotu 16-21, 21-14 og 22-20.

Tvíliðaleik karla unnu Axel Örn Sæmundsson úr UMF Þór og Egill Magnússon úr Aftureldingu. Keppt var í riðli í greininni. Ekki var keppt í tvíliðaleik kvenna í B-flokki. Tvenndarleikinn unnu Brynjar Már Ellertsson úr ÍA og Ingibjörg Rósa Jónsdóttir úr UMFS en keppt var í riðli í greininni.

Kristófer Darri Finnsson úr TBR sigraði einliðaleik karla.Mynd/BSÍ
Margrét Jóhannsdóttir úr TBR vann einliðaleik kvenna.Mynd/BSÍ
Tvíliðaleik karla unnu Kristófer Darri Finnsson og Davíð Bjarni Björnsson úr TBR.Mynd/BSÍ
Tvenndarleik í meistaraflokki unnu Daníel Thomsen og Margrét Jóhannsdóttir úr TBR.Mynd/BSÍ



Fleiri fréttir

Sjá meira


×