Innlent

Margrét kjörin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar

Atli Ísleifsson skrifar
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, og Margrét Marteinsdóttir, nýr stjórnarformaður flokksins.
Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, og Margrét Marteinsdóttir, nýr stjórnarformaður flokksins. Mynd/Björt framtíð
Margrét Marteinsdóttir var í dag kjörin stjórnarformaður Bjartrar framtíðar. Margrét hlaut 53 prósent greiddra atkvæða, en gjaldkeri og varaþingmaður flokksins, Brynhildur S. Björnsdóttir var einnig í framboði.

Margrét er vert á Kaffihúsi Vesturbæjar og fyrrum frétta- og dagskrágerðarkona á RÚV.Kjörið fór fram á aukaársfundi flokksins á Akranesi.

Í tilkynningu frá Bjartri framtíð segir að stjórnarformaður sé annar formaður flokksins en viðkomandi stýrir stjórn Bjartrar framtíðar sem telur 80 manns, hefur umsjón með málefnastarfi flokksins og er tengiliður stjórnar við sveitarstjórnarframboð.

„Margrét er 43 ára, býr í Reykjavík og starfar sem vert á Kaffihúsi Vesturbæjar. Hún vann í 16 ár á Ríkisútvarpinu, lengst af sem fréttakona en starfaði þar einnig við dagskrárgerð um árabil auk þess að vera varafréttastjóri og dagskrárgerðarstjóri á Rás 1 og Rás 2. Fyrir þann tíma vann hún að mestu við aðhlynningu á hjúkrunarheimilum, lengst af á Grund. Hún hefur starfað með Bjartri framtíð síðan fyrir síðustu sveitarstjórnarkosningar þar sem hún var í framboði í Reykjavík.“


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×