Sport

Margrét í undanúrslit í einliðaleik

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Margrét er komin í undanúrslitin.
Margrét er komin í undanúrslitin. Mynd/Sportmyndir.is
Íslandsmeistarinn í einliðaleik kvenna, Margrét Jóhannsdóttir, er komin í undanúrslit í badmintonkeppni WOW Reykjavik International Games sem nú fer fram í TBR húsinu við Gnoðarvog.

Margrét sigraði í 8 liða úrslitum ensku stúlkuna Pamela Reyes 24-22 og 21-16. Margrét var að vonum ánægð með sigurinn og sagði að leikurinn hefði verið mjög erfiður því það voru mörg löng rallý.

Margrét átti einnig möguleika á að komast í undanúrslit í tvíliðaleik með Drífu Harðardóttur en þær féllu úr leik gegn pari frá Malasíu í dag.

Hægt er að fylgjast með gangi mála í Gnoðarvoginum hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×