Lífið

Margrét Gnarr borðar fyrsta hamborgarann í hálft ár: Hægt að vinna ferð fyrir tvo á landsleikinn í Hollandi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hér má sjá mynd af borgaranum og Margréti.
Hér má sjá mynd af borgaranum og Margréti. vísir
Það verður mikið um dýrðir í hádeginu á Roadhouse á morgun, en klukkan hálf tólf verður fyrstu 50 viðskiptavinunum sem mæta á svæðið gefin frí We Will Rock You hamborgaramáltíð. Borgarinn er enginn smásmíði en á honum má meðal annars finna djúpsteiktan ost, laukhringi og Roadhouse ostasósu en viðskiptavinir hafa beðið spenntir eftir að fá að bragða á honum.

Fitness  drottningin Margrét  Gnarr  ætlar að taka sér pásu frá æfingum, mæta og fá sér hamborgara en hann verður fyrsti borgarinn sem fer inn fyrir varir Margrétar í sex mánuði og segist hún vera virkilega spennt.

Hún ætlar líka ásamt fulltrúa  Roadhouse  að draga út einn heppinn viðskiptavin sem fær miða fyrir tvo á landsleik Hollands og Íslands í Hollandi í september. Ekki nóg með það að sá heppni eða sú heppna fái miða á leikinn heldur einnig flug fram og til baka og gistingu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×