Lífið

Margot Robbie fannst hún ekki sæt

Wolf of Wall Street skvísan Margot Robbie segir í viðtali við Vanity Fair að henni hafi ekki þótt hún falleg þegar hún var yngri og að skólafélagarnir hefðu að hennar mati verið fallegri.

„Ég er í stórum vinkonuhóp heima í Ástralíu og ég er klárlega ekki sú myndarlegasta. Ég ólst ekki upp við það að þykja ég sjálf vera sérstaklega myndarleg.“

Robbie, sem er 24 ára, skaust fyrst fram á sjónarsviðið þegar hún lék Donnu Freedman í áströlsku sápuóperunni Nágrönnum sem hefur verið vinsæl um árabil.

Hún landaði svo hlutverki í stórmynd Martin Scorsese, Wolf of Wall Street, þar sem hún lék eiginkonu verðbréfamiðlarans Jordans Belforts sem leikinn var af Leonardo DiCaprio.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×