Sport

Margir verða bara ljótari með árunum

Henry Birgir Gunnarsson í Stokkhólmi skrifar
Hressir John Kavanagh og Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars, slá á létta strengi í Speglasalnum á Grand Hotel í Stokkhólmi þar sem fjölmiðladagurinn og opna æfingin fóru fram á fimmtudaginn.
Hressir John Kavanagh og Haraldur Nelson, faðir og umboðsmaður Gunnars, slá á létta strengi í Speglasalnum á Grand Hotel í Stokkhólmi þar sem fjölmiðladagurinn og opna æfingin fóru fram á fimmtudaginn. Fréttablaðið/Björn Sigurðsson
„Ég veit ekki alveg hvar ég er en ég verð góður á morgun,“ sagði John Kavanagh, þjálfari Gunnars Nelson, en hann stendur í ströngu þessa dagana.

Um síðustu helgi var hann með Conor McGregor í Las Vegas og hann kom beint þaðan til Stokkhólms til þess að fylgja Gunnari alla leið gegn Rick Story. Kavanagh lenti þrjú um nóttina í Stokkhólmi og þurfti svo að vakna klukkan sex um morguninn. Nóg að gera.

„Ég er gríðarlega spenntur enda er þetta í fyrsta skipti sem Gunni er í aðalbardaga. Rick Story hentar Gunnari vel og ég er viss um að hann mun sýna að hann eigi skilið að berjast um titilinn,“ segir Kavanagh en hann er orðinn einn heitasti þjálfarinn í bransanum og fjölmiðlamenn kepptust um að ná af honum tali.

Þó svo Kavanagh hafi misst af hluta undirbúnings bardaga Gunnars og Story þá segir þjálfarinn það ekki koma að sök.

„Gunni var með okkur á Írlandi og tók vel á því með Conor. Við erum að æfa allt árið en ekki bara að taka á því þegar bardagi nálgast. Það eru sjö ár síðan við byrjuðum að vinna saman. Það hefur verið æft fyrir þennan stóra bardaga í sjö ár. Undirbúningurinn var frábær og Gunni lítur hrikalega vel út,“ segir Kavanagh en hann birti einmitt sjö ára gamla mynd af sér og Gunnari á Twitter á dögunum. „Hann lítur út fyrir að vera tólf ára á myndinni,“ segir hann og hlær við.

Story hefur tapað fimm af síðustu níu bardögum sínum en allir vita þó hvað hann getur. Hversu góður er hann í dag að mati Kavanaghs?

„Þetta er reyndur og harður strákur. Mér finnst hann hafa staðið í stað. Hann hefur ekki þróað sinn stíl eins og Gunnar hefur gert til að mynda. Það er mikill munur á Gunnari í dag og þegar hann keppti í UFC. Margir af þessum strákum taka ekki miklum framförum á fimm árum. Þeir eru kannski aðeins ljótari eftir alla bardagana,“ sagði Kavanagh og glotti.

Gunnar sagði í viðtali í Fréttablaðinu á dögunum að ný kynslóð væri að koma upp í UFC. Hann væri hluti af þeirri kynslóð rétt eins og Conor McGregor. Story væri það ekki.

„Það er hárrétt hjá Gunnari. UFC er sífellt að þróast og nýir stílar að taka yfir. Það virðist verða mikil framför í íþróttinni á tveggja ára fresti. Story er til að mynda ekki jafn tæknilega sterkur og Gunni og þess vegna held ég að hann muni tapa bardaganum,“ sagði John Kavanagh að lokum.

Bardagakvöldið hefst klukkan 19.00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Gunnar er ósigraður í fjórtán bardögum í MMA, þar af fjórum í UFC.

MMA

Tengdar fréttir

Story er svefnlaus í Stokkhólmi

Maður hefur séð hressari menn en Bandaríkjamanninn Rick Story á fjölmiðladeginum í Stokkhólmi í gær. Það átti sér þó skýringar.

Ótrúlegur ferill Gunnars Nelson

Augu Íslands verða á Stokkhólmi annað kvöld þar sem okkar maður stígur í búrið og mætir Bandaríkjamanninum Rick Story.

Gunnar verður heimsmeistari

„Gunnar hefur verið að berjast lengi og við höldum að Gunnar eigi eftir að verða heimsmeistari einn daginn.“

Lét frænku mína klippa mig og það varð allt brjálað

"Áhugasvið fólks er misjafnt og ég spáði ekki eins mikið í þessu og þeir sem settu þetta í blöðin," segir Gunnar Nelson en klipping sem hann fékk sér fyrir rúmum mánuði vakti talsverða athygli.

Story: Ætla að láta reyna á þol Gunnars

Bandaríkjamaðurinn Rick Story er fullviss um að hann muni gera Gunnari Nelson lífið leitt er þeir mætast í búrinu í Stokkhólmi á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×