Golf

Margir um hituna í Skotlandi á Alfred Dunhill Links meistaramótinu

Padraig Harrington hefur leikið vel í Skotlandi.
Padraig Harrington hefur leikið vel í Skotlandi. AP/Getty
Eitt stærsta mót ársins á Evrópumótaröðinni, Alfred Dunhill Links meistaramótið, fer fram nú um helgina en leikið er á þremur goðsagnakenndum golfvöllum í Skotlandi, Kingsbarns, Carnoustie og St. Andrews.

Eftir tvo hringi leiðir Frakkinn Raphael Jacquelin mótið en hann hefur leikið fyrstu tvo hringina á níu höggum undir pari.

Fjórir kylfingar eru jafnir í öðru sæti á átta höggum undir pari en það eru þeir Alexander Levy,Oliver Wilson, Shane Lowry og sjálfur Padraig Harrington sem hefur verið í töluverðri lægt að undanförnu.

Besti kylfingur heims, Rory McIlroy, er með í mótinu en hann er jafn í 20. sæti á fjórum höggum undir pari og gæti með góðum hring á morgun blandað sér í baráttu efstu manna.

Fleiri stjörnur úr evrópska liðinu í Rydernum eru meðal keppenda en þar má nefna Victor Dubuisson sem er jafn McIlroy á fjórum undir pari, Stephen Gallacher á sex undir og Martin Kaymer sem hefur leikið illa hingað til og er á tveimur höggum yfir pari.

Sýnt er beint frá mótinu á Golfstöðinni og hefst útsending frá þriðja hring klukkan 12:00 á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×