Bílar

Margir kíktu á Tivoli XLV

Finnur Thorlacius skrifar
Tivoli XLV er rúmgóður og með 720 lítra farangursrými.
Tivoli XLV er rúmgóður og með 720 lítra farangursrými.
Síðasta laugardag frumsýndi Bílabúð Benna sportjeppann Tivoli XLV, nýjasta útspilið frá SsangYong, á þremur stöðum á landinu; í Tangarhöfðanum, hjá Bílaríki Akureyri og á Njarðarbraut í Reykjanesbæ.

Það sem stendur uppúr í Tivoli XLV er að hann er virkilega vel útbúinn, extra langur, einstaklega rúmgóður og svo er hann fjórhjóladrifinn, eins og allir hinir SsangYong bræður hans.

Umboðsaðilar SsangYong fullyrða að hann sé með staðalbúnað sem aðeins er fáanlegur í mun dýrari sportjeppum, enda listinn langur. Fjöldi manns gerðu sér ferð til að skoða gripinn á laugardaginn og sannreyna eiginleikana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×