Viðskipti innlent

Margir boltar á lofti og hlutabréfin lækka

Haraldur Guðmundsson skrifar
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sagði félagið ekki ætla að ráðast í aðgerðir sem myndu skaða það til langs tíma.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, sagði félagið ekki ætla að ráðast í aðgerðir sem myndu skaða það til langs tíma. vísir/gva
„Það eru augljóslega margir boltar á lofti en óvissa er um framhaldið og það kemur ekki á óvart að fjárfestar stígi varlega til jarðar,“ segir Guðlaugur Steinarr Gíslason, sérfræðingur í markaðsviðskiptum hjá Arctica Finance, um uppgjörsfund Icelandair Group í gær og áframhaldandi lækkun á hlutabréfaverði flugfélagsins.

Á fundinum var farið yfir aðgerðir sem stjórnendur Icelandair Group ætla að ráðast í gegn aukinni samkeppni frá lággjaldaflugfélögum og þeim krefjandi aðstæðum sem fyrirtækið tilkynnti um í síðustu viku. Snörp lækkun á bókunarstöðu í janúar, sem hefur batnað síðustu daga, hafi og muni leiða til breytinga á fargjöldum og vöruframboði, þar á meðal lækkun á hluta fargjalda Saga Class. Þær eigi að leiða til bættrar afkomu upp á 30 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði 3,4 milljarða króna, á ársgrundvelli frá og með ársbyrjun 2018. Stjórnendurnir hafa aftur á móti ekki skoðað það alvarlega að skipta fyrirtækinu í tvö vörumerki, eða annars vegar lággjaldahluta og hins vegar núverandi viðskiptamódel.

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, svaraði aðspurður að eitt af því sem stjórnendurnir þyrftu nú að velta fyrir sér sé hvort fara eigi sömu leið og skandinavíska flugfélagið SAS og sækja um nýtt flugrekstrarleyfi og opna starfsstöðvar erlendis og þannig lækka launakostnað. Slíkt myndi aftur á móti „kosta dálítil átök við ákveðnar stéttir“, eins og Björgólfur orðaði það. Launakostnaður fyrirtækisins hækkaði um 29 prósent á fjórða ársfjórðungi 2016 en tekjurnar um tólf prósent.

„Ég hef fulla trú á að félagið sé að skoða þetta. Aftur á móti mun þetta taka einhvern tíma hjá SAS áður en þeir sjá teljandi áhrif fyrir samstæðuna og það sama ætti væntanlega við um Icelandair,“ segir Guðlaugur Steinarr.

„Mér fannst félagið fara nokkuð vel yfir stöðuna og þetta var mun ítarlegri yfirferð á fundinum en vanalega. Manni finnst eins og þeir séu frekar að horfa í áttina að því að breyta tekjustrúktúrnum svo það verði auðveldara að bera saman raunkostnað flugfargjalda flugfélagsins við lággjaldaflugfélög. Menn verða svo bara að gera upp við sig hvort þeir trúi því að þessar leiðir muni hafa teljandi áhrif til hins betra. Það kemur mér ekki á óvart að menn stígi varlega til jarðar en það er ekki eins og það sé ekki að koma neitt út úr þessu félagi. Félagið stendur þrátt fyrir þetta enn vel að vígi til að takast á við þessa óvissu,“ segir Guðlaugur Steinarr.

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Aðgerðir eiga að skila Icelandair 30 milljónum dala í bættri afkomu

Aðgerðir sem stjórnendur Icelandair Group hyggjast ráðast í, bæði á tekju- og gjaldahlið félagsins, eiga að skila bættri afkomu að fjárhæð 30 milljónir Bandaríkjadala, jafnvirði um 3,5 milljarða íslenskra króna, þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda í ársbyrjun 2018.

Fjárfestar í Icelandair skildir eftir í myrkrinu

Icelandair hefur verið skellt niður á jörðina. Fjárfestar, sjóðstjórar og verðbréfamiðlarar, sem Markaðurinn hefur rætt við, eru á einu máli um að það hafi orðið "meiriháttar trúnaðarbrestur,“ eins og einn viðmælandi lýsir því, á milli stjórnenda Ice­landair og hluthafa fyrirtækisins.

Icelandair greiði 565 milljónir í arð

Stjórn Icelandair Group hf. mun leggja til við aðalfund félagsins þann 3. mars næstkomandi að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 565 milljóna króna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×