Innlent

Margfaldur verðmunur á innkaupalistum skóla

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Kostnaður vegna námsgagna, ritfanga og fylgihluta getur hlaupið á tugþúsundum. Í könnun fréttastofu var kostnaður vegna skólataska, pennaveskja og annars skólabúnaðs ekki tekinn með í dæmið.
Kostnaður vegna námsgagna, ritfanga og fylgihluta getur hlaupið á tugþúsundum. Í könnun fréttastofu var kostnaður vegna skólataska, pennaveskja og annars skólabúnaðs ekki tekinn með í dæmið. vísir/valli
Í þessari viku hefjast flestir grunnskólar landsins og lítur út fyrir að skólabyrjun kosti barnafjölskyldur skildinginn. Samkvæmt könnun Fréttablaðsins á innkaupalistum grunnskóla landsins kostar að meðaltali tæpar átta þúsund krónur að kaupa inn fyrir barn í 1. bekk og tæpar 16 þúsund krónur fyrir barn í 8. bekk. Þá er ekki tekinn með kostnaður við skólatösku, pennaveski, íþróttaföt og annað sem fylgir skólagöngunni.

En það er misjafnlega dýrt fyrir foreldra að kaupa inn skólavörur eftir því hvaða skóla barnið fer í. Samkvæmt sölusíðunni Heimkaup, þar sem innkaupalistar allra skóla sem gera slíkan lista eru aðgengilegir, er gífurlegur munur á listunum.

Námsgögn fyrir barn í 1. bekk kosta allt frá rúmum þrjú þúsund krónum upp í tæpar fjórtán þúsund krónur. Sumir skólar bjóða upp á magnkaup fyrir foreldra yngstu bekkjanna og þá bætist sá kostnaður við þessa tölu.

Í 8. bekk er ríflega fjórfaldur munur á ódýrasta listanum og þeim dýrasta. Ódýrast er fyrir börn í Grunnskólanum á Þingeyri að kaupa inn fyrir skólann, eða einungis 6.945 krónur. Skólastjórinn þar í bæ, Stefanía Ásmundsdóttir, segir sveitarfélagið veita börnunum styrk til að kaupa námsgögn og því þurfi þau lítið að borga sjálf.

Samkvæmt Heimkaupum er dýrast að kaupa inn fyrir nám í Hrafnagilsskóla í Eyjafjarðarsveit, eða tæpar þrjátíu þúsund krónur. Hrund Hlöðversdóttir, skólastjóri þar, segir innkaupalistann á Heimkaupum gefa upp of mikið magn af hverri vöru, í einhverjum tilfellum hreinlega rangar vörur eða óþarflega dýrar útgáfur af vörunum.

Ef eingöngu grunnskólar í Reykjavík eru bornir saman kemur í ljós að ríflega helmings munur er á verði innkaupalistanna. Ódýrast er að hefja nám í 8. bekk í Austurbæjarskóla, eða rúmar tíu þúsund krónur, en um 22 þúsund í Ingunnarskóla.

Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar
Ragnar Þorsteinsson, sviðsstjóri skóla-og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, segir afar erfitt fyrir sveitarfélagið að staðla námsgögn fyrir sveitarfélagið. 

„Skólarnir vinna að sama markmiði en nota mismunandi leiðir til þess. Sumir skólar nota námsgögnin sem keypt eru að hausti allan veturinn, aðrir aðeins hálfan vetur. Við höfum ekki farið út í að staðla þetta kerfi en biðjum skólastjóra að reyna að stilla þessu í hóf og hvetja foreldra til að nýta gömul gögn frá fyrri vetrum.“

Ragnar bætir við að gagnrýna megi að listarnir séu kallaðir innkaupalistar enda þurfi ekki endilega að kaupa allt á þeim. 

„Þetta er listi yfir námsgögn sem þurfa að vera til staðar. Með því að nota orðið innkaupalisti er hætta á að fólk kaupi hluti sem það þarf ekki. Þegar það kemur að viðskiptum við fyrirtæki sem selja vörurnar, sem við höfum enga stjórn á, kemur ekki á óvart að allt á listunum sé sett í pakkann. En foreldrar þurfa að vera vakandi fyrir þessu og fara í gegnum gamla dótið áður en það kaupir allt nýtt.“

Verð á innkaupalistum 8. bekkjar á landsvísu

skv. innkaupalistum skólanna á sölusíðunni Heimkaup og verðum sem þar eru gefin upp

Grunnskólinn á Þingeyri6.945
Grunnskóli Fjallabyggðar - Ólafsfirði9.587
Naustaskóli9.766
Grunnskólinn á Ísafirði10.198
Austurbæjarskóli 10.410
Brúarásskóli10.565
Norðlingaskóli 10.753
Grunnskóli Djúpavogs10.885
Egilsstaðaskóli11.433
Grunnskóli Hornafjarðar11.553
Hólabrekkuskóli 11.756
Seyðisfjarðarskóli12.048
Grunnskóli Húnaþings vestra 12.182
Grunnskóli Reyðarfjarðar12.351
Suðurhlíðarskóli 12.582
Setbergsskóli12.600
Nesskóli12.611
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar12.830
Hagaskóli12.890
Háteigsskóli12.971
Vatnsendaskóli13.043
Hallormsstaðaskóli13.138
Flúðaskóli13.357
álftanesskóli13.385
Hvaleyrarskóli13.517
Kelduskóli Hamravík 1013.560
Vogaskóli 13.576
Húnavallaskóli13.746
Flóaskóli 13.746
Álfhólsskóli13.754
Landakotsskóli13.805
Sjálandsskóli 13.824
Reykhólaskóli13.878
Hvolsskóli13.884
Borgarhólsskóli13.966
Klébergsskóli 13.995
Salaskóli14.088
Fellaskóli14.144
Grunnskólinn í Stykkishólmi 14.509
Hörðuvallaskóli14.604
Húsaskóli14.644
Áslandsskóli14.704
Grunnskólinn á Hólmavík14.765
Smáraskóli14.781
Sæmundarskóli14.811
Grunnskóli Vestmannaeyja14.841
Hamarskóli, Vestmannaeyjar14.841
Laugalækjarskóli14.885
Tjarnarskóli 14.901
Heiðarskóli, Reykjanesbæ14.910
Grunnskólinn á Eskifirði14.936
Lækjarskóli14.996
Auðarskóli 15.074
Grunnskóli Snæfellsbæjar 15.083
Hraunvallaskóli15.170
Varmárskóli15.180
Foldaskóli 15.182
Vallaskóli15.343
Varmahlíðarskóli15.553
Engidalsskóli15.602
Víðistaðaskóli-Engidal15.602
Víðistaðaskóli-Víðistaðatún15.602
Árbæjarskóli15.706
Rimaskóli15.791
Barnaskólinn á Eyrabakka og Stokkseyri15.935
háaleitisskóli álftamýri16.031
háaleitisskóli stóragerði 16.031
réttarholtsskóli 16.138
Grunnskóli Fjallabyggðar - Siglufirði16.203
Njarðvíkurskóli v/Brekkustíg 16.233
Grunnskólinn í Borgarnesi16.274
Brekkubæjarskóli16.281
Grunnskóli Önundarfjarðar16.330
Sunnulækjarskóli 16.569
Vættaskóli Borgir16.616
Vættaskóli Engi16.616
Reykjahlíðarskóli16.655
Giljaskóli16.771
Lágafellsskóli16.788
Kársnesskóli17.072
Brekkuskóli17.092
Lindaskóli17.508
Lundarskóli17.561
Síðuskóli17.776
Oddeyrarskóli 17.867
Grunnskóli Vesturbyggðar - Bíldudalsskóli17.941
Myllubakkaskóli18.053
Glerárskóli18.102
Kópavogsskóli18.169
Grunnskóli Grindavíkur 18.257
Grunnskólinn Þorlákshöfn 18.312
Öldutúnsskóli18.365
Garðaskóli18.465
Grunnskóli Grundarfjarðar18.465
Breiðholtsskóli 18.488
Stóru-Vogaskóli18.516
Hlíðarskóli Akureyri18.561
Snælandsskóli18.608
Akurskóli18.624
Langholtsskóli18.800
Grundaskóli 19.120
Þelamerkurskóli19.252
Grunnskóli Seltjarnarness19.741
Dalskóli19.774
Valsársskóli19.775
Ölduselskóli19.913
Grunnskólinn í Sandgerði 20.397
Dalvíkurskóli20.629
Seljaskóli21.107
Ingunnarskóli 22.000
Holtaskóli22.456
Hrafnagilsskóli29.095


Verðsamanburður á grunnskólum í Reykjavík



Austurbæjarskóli 10410
Norðlingaskóli 10.753
Hólabrekkuskóli 11.756
suðurhlíðarskóli 12582
Hagaskóli12890
Háteigsskóli12971
Kelduskóli Hamravík 1013560
Vogaskóli 13576
Landakotsskóli13805
Fellaskóli14.144
Húsaskóli14644
Sæmundarskóli14.811
Laugalækjarskóli14885
Tjarnarskóli 14901
Foldaskóli 15182
Árbæjarskóli15.706
Rimaskóli15791
háaleitisskóli álftamýri16031
háaleitisskóli stóragerði 16031
réttarholtsskóli 16138
Vættaskóli Borgir16616
Vættaskóli Engi16616
Breiðholtsskóli 18.488
Langholtsskóli18800
Dalskóli19.774
ölduselskóli19.913
Seljaskóli21.107
Ingunnarskóli 22.000
 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×