Matur

Marengskökur að hætti Evu Laufeyjar: Uppskrift

nína hjördís þorkelsdóttir skrifar

Matgæðingurinn Eva Laufey Kjaran sýndi áhorfendum kvöldfrétta Stöðvar 2 hvernig á að baka dýrindis marengskökur með rjómakremi og bræddu Toblerone. Eva deilir hér uppskrift sinni, sem er að hennar sögn sáraeinföld.

Marengsbotn:

4 dl púðursykur

4 eggjahvítur

Aðferð:

Hitið ofninn í 150°C. Þeytið eggjahvítur, um leið og það myndast froða þá bætið þið sykrinum saman við í nokkrum skömmtum. Þeytið þar til marengsblandan er orðin stíf (það á að vera hægt að hvolfa skálinni án þess að blandan hreyfist).

Setjið marengsblönduna á pappírsklædda ofnplötu, annaðhvort gerið þið tvo botna eða marga litla eins og ég sýni í myndbandinu.

Bakið við 150°C í 40-45 mínútur.

Rjómakrem:

500 ml rjómi

2 msk flórsykur

1 tsk vanillusykur eða dropar

100 g hakkað toblerone

Jarðarber, magn eftir smekk

150 g toblerone (brætt)

Aðferð:

Þeytið rjóma, bætið flórsykrinum, vanillu og hökkuðu toblerone út í og blandið varlega saman við rjómann. Setjið rjómakrem ofan á hverja marengsköku og skreytið með ferskum jarðarberjum. Bræðið toblerone yfir vatnsbaði og dreifið vel yfir kökurnar.

Einfalt, fljótlegt og dásamlega gott!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×