Marel hagnaðist um 5,4 milljarða

Vísir Viðskipti erlent 01. febrúar 2012 15:00
Theo Hoen, forstjóri Marel, er til vinstri á myndinni. Hann segist í tilkynningu vera ánægður með uppgjör félagsins.
Theo Hoen, forstjóri Marel, er til vinstri á myndinni. Hann segist í tilkynningu vera ánægður með uppgjör félagsins.
Marel hagnaðist um 34,5 milljónir evra á árinu 2011, eða sem nemur 5,4 milljarða króna. Tekjur félagsins jukust um 15 prósent frá fyrra ári og námu 668 milljónum evra, eða sem nemur 106 milljörðum króna. Theo Hoen, forstjóri Marel, segir í tilkynningu frá félaginu að árið hafi verið mjög gott hjá fyrirtækinu. Innri vöxtur fyrirtækisins hafi verið um 15 prósent frá árinu á undan.

Tilkynninging frá fyrirtækinu er eftirfarandi:

Sterkur og arðbær innri vöxtur

- Tekjur ársins 2011 námu 668 milljónum evra, sem er 15% aukning samanborið við tekjur af kjarnastarfsemi árið áður [2010: 582 milljónir evra].1
- Leiðrétt EBITDA var 98,0 milljónir evra, sem er 14,7% af tekjum [2010: 88,1 milljónir evra af kjarnastarfsemi, leiðrétt].2
- Leiðréttur rekstrarhagnaður (EBIT) var 73,2 milljónir evra, sem er 10,9% af tekjum [2010: 64,1 milljónir evra af kjarnastarfsemi, leiðrétt].
- Hagnaður ársins 2011 nam 34,5 milljónum evra [2010: 13,6 milljónir evra]. Hagnaður per hlut nam 4,70 evru sentum [2010: 1,87 evru sent].
- Sjóðstreymi er traust og nettó vaxtaberandi skuldir námu 250,5 milljónum evra í lok árs 2011 [2010: 256,7 milljónir evra].
- Pantanabók er sterk og nam 196,2 milljónum evra í árslok 2011 [2010: 162,2 milljónir evra].
Árið 2011 var mjög gott hjá Marel. Tekjur námu 668 milljónum evra, sem er 15% aukning samanborið við árið á undan. Leiðréttur rekstrarhagnaður var 10,9% af veltu sem er í samræmi við markmið fyrirtækisins um rekstrarhagnað upp á 10-12% af veltu á árinu. Horfur fyrir árið 2012 eru jákvæðar.
Á aðalfundi 2012, sem haldinn verður 29. febrúar nk., mun stjórn Marel leggja til að hluthafar fái 0,95 evru sent greidd í arð á hlut fyrir rekstrarárið 2011. Miðað við fjölda útistandandi hluta nú nemur fyrirhuguð heildararðgreiðsla um 6,9 milljónum evra, sem samsvarar um 20% af hagnaði ársins. Tillagan um arðgreiðslu er í samræmi við markmið um fjármagnsskipan og arðgreiðslustefnu sem samþykkt var á aðalfundi félagsins 2011.
Theo Hoen, forstjóri:
„Árið var mjög gott hjá Marel. Hreinn innri vöxtur nam 15% samanborið við árið 2010. Árinu lauk einstaklega vel með metfjórðungi í tekjum og rekstrarhagnaði við efri mörkin á EBIT markmiði okkar fyrir árið sem er 10-12% af veltu. Pantanabókin er sterk og gefur góð fyrirheit fyrir árið 2012.“

Fleiri fréttir - Viðskipti erlent

Viðskipti erlent 25. maí. 2012 13:17

Facebook með nýtt myndaforrit

Facebook hefur ákveðið að fara af stað með nýtt myndaforrit fyrir snjallsíma sem kallast C...  

Meira
Viðskipti erlent 25. maí. 2012 08:06

Stöðva viðskipti með bréf í Bankia

Viðskipti með bréf í spænska bankanum Bankia hafa verið stöðvuð í kauphöllinni í Madríd. T...  

Meira
Viðskipti erlent 24. maí. 2012 08:56

Hewlett Packard rekur 27 þúsund starfsmenn

Tölvu- og hugbúnaðarframleiðandinn Hewlett Packard hyggst segja upp 27 þúsund starfsmönnum...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 22:00

Vekur upp spurningar um framtíð fjármálakerfisins

Gríðarlegt tap sem bandaríski bankarisinn JPMorgan Chase tilkynnti nýverið um hefur sett u...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 15:30

Yfirhönnuður Apple sleginn til riddara

Jonathan Ive, yfirhönnuður Apple, má frá og með deginum í dag kalla sig Sir Jonathan Ive, ...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 13:24

Papademos: Fyrir alla muni haldið ykkur við áætlunina!

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, segir að Grikkir verði, fyrir al...  

Meira
Viðskipti erlent 23. maí. 2012 08:49

Skráning Facebook dregur dilk á eftir sér

Gengi Facebook féll um 9 prósent í gær, en daginn þar á undan féll gengi bréfa félagsins u...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 11:37

Dyr að opnast inn á stærsta farsímamarkað heims

Markaðurinn fyrir smáforrit (App) í snjallsíma hefur stækkað ógnarhratt síðustu misseri, e...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 11:02

OECD spáir áfram erfiðleikum í Evrópu

Efnahags- og framfarastofnun Evrópu, OECD, segir Evrópu geta lent í enn meiri vanda ef ekk...  

Meira
Viðskipti erlent 22. maí. 2012 08:47

Norðmenn ólíkir Bretum þegar kemur að framtíðarsjóðum

Norðmenn njóta góðs af því að hugsa til framtíðar þegar kemur að olíuauði landsins, og aðs...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 21:21

Google Chrome er vinsælasti vafri veraldar

Nýjustu netmælingar fyrirtækisins StatCounter gefa til kynna að Chrome, netvafri tæknirisa...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 20:30

Hrun á markaðsvirði Facebook - allra augu á Morgan Stanley

Augu fjárfesta í Bandaríkjunum beinast nú að Morgan Stanley, helsta viðskiptabanka Faceboo...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 13:58

Skemmtigarðastríð í uppsiglingu

Mikið skemmtigarðastríð virðist í uppsiglingu milli Disney og Universal Studios. Í júní nk...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 10:25

Yahoo selur hlut í Alibaba fyrir stórar upphæðir

Bandaríski netrisinn hefur samþykkt að selja hluta af eignarhluta sínum í kínverska netfyr...  

Meira
Viðskipti erlent 21. maí. 2012 08:52

Danir auka þjónustu við BRIC-löndin

Danska hagkerfið hefur í sívaxandi mæli snúið sér í það að þjónusta BRIC-löndin svokölluðu...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 23:41

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka

Fjárfestar óttast áhlaup á evrópska banka, einkum þá sem eru með höfuðstöðvar í Suður-Evró...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 09:54

Zuckerberg breytti hjúskaparstöðunni í "Giftur"

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, tilkynnti heiminum í gær að hann hefði gengið í það h...  

Meira
Viðskipti erlent 20. maí. 2012 14:00

Kínverjar leyfa Google að kaupa Motorola

Kínversk yfirvöld hafa loks gefið sitt lokasvar um að netrisanum Google sé heimilt að ljúk...  

Meira
Viðskipti erlent 19. maí. 2012 12:38

Skuldastaða evruríkjanna aðalviðfangsefnið

Búist er við því að skuldastaða evruríkjanna verði aðalviðfangsefni leiðtoga átta helstu i...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Skoðun

Umsókn um málfrelsi

Umsókn um málfrelsi

Pawel Bartoszek
Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónvarpi. Sum, til d...

Skoðun

Raunhæfa planið

Raunhæfa planið

Ólafur Þ. Stephensen
Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun til nokkurra v...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti erlent / Marel hagnaðist um 5,4 milljarða