Fótbolti

Marca: Búið að samþykkja tilboð Real Madrid í De Gea

Kristinn Páll Teitsson skrifar
De Gea á æfingu hjá Manchester United á dögunum.
De Gea á æfingu hjá Manchester United á dögunum. Vísir/getty
Spænska blaðið Marca greinir frá því í dag að Real Madrid hafi komist að samkomulagi við Manchester United um kaupverðið á spænska markverðinum David De Gea. Samkvæmt spænska miðlinum greiðir Madrídar-félagið á bilinu 30-35 milljónir evra.

De Gea, sem er uppalinn í Madrídarborg, hefur verið orðaður við Real Madrid í allt sumar en þeir hafa verið á höttunum eftir nýjum markmanni eftir að hafa selt goðsögnina Iker Casillas til Porto fyrr í sumar.

Hafa félögin eytt sumrinu í að skiptast á tilboðum en Real Madrid virðist loksins vera búið að sætta sig við að bjóða þrjátíu milljónir evra í De Gea sem á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum hjá Manchester United.

De Gea hefur verið utan leikmannahóps hjá Manchester United í fyrstu fjórum leikjum tímabilsins en Real Madrid hefur ekki fengið á sig mark í fyrstu tveimur leikjum sínum á tímabilinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×