Fótbolti

Marca: Bale framlengir til 2021

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Bale fagnar marki í leik með Real Madrid.
Bale fagnar marki í leik með Real Madrid. vísir/getty
Gareth Bale hefur framlengt samning sinn við Real Madrid og er nú skuldbundinn félaginu til loka tímabilsins 2021 ef marka má frétt spænska miðilsins Marca.

Bale átti frábært tímabil með Real Madrid í fyrra og kórónaði það svo með velska landsliðinu sem sló í gegn á Evrópumótinu í Frakklandi í sumar.

Fullyrt er að Bale muni fá tíu milljónir evra, jafnvirði 1,3 milljarða króna, í árslaun og verði þar með jafntekjuhár fyrirliðanum Sergio Ramos og litlu minna en Cristiano Ronaldo.

Enn fremur er fullyrt að Norðmaðurinn Martin Ödegaard fái nýjan samning við Real Madrid, einnig til 2021, þrátt fyrir að hafa fá tækifæri fengið hjá spænsku risunum.

Þá segir Marca að Cristiano Ronaldo sé einnig að framlengja samning sinn við Madrídarfélagið og að það verði tilkynnt formlega í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×