Golf

Marc Leishman leiðir á Firestone eftir fyrsta hring

Mark Leishman lék á alls oddi i gær.
Mark Leishman lék á alls oddi i gær. AP/Getty
Ástralinn Marc Leishman leiðir á Bridgestone Invitational sem fram fer á Firestone vellinum en mótið er hluti af heimsmótaröðinni í golfi. Leishman lék fyrsta hring á 64 höggum eða sex undir pari en jafnir í öðru sæti á fimm undir pari koma þeir Justin Rose, Ryan Moore og Charl Schwartzel.

Skor á fyrsta hring var óvenju gott miðað við hversu erfiður Firestone er alla jafna en sigurvegari síðasta árs, Tiger Woods, kom inn á 68 höggum eða tveimur undir pari. Hann er jafn í níunda sæti eins og er en augu margra verða eflaust á Woods um helgina sem reynir að koma sér í leikform á ný eftir aðgerð á baki.

Besti kylfingur heims, Adam Scott, byrjaði ágætlega en hann kom inn á 69 höggum eða einu undir pari. Það sama gerðu þeir Bubba Watson og Rory McIlroy en Martin Kaymer, sem sigrað hefur á Players og Opna bandaríska meistaramótinu á árinu, kom inn á 77 höggum eða sjö yfir pari. Hann fékk ekki einn einasta fugl á hringnum og er meðal neðstu manna.

Annar hringur á Bridgestone Invitational verður í beinni útsendingu á Golfstöðinni frá klukkan 17:30 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×