Glamour

Marc Jacobs lokaði tískuvikunni í New York með hvelli

Ritstjórn skrifar
Sýning Marc Jacobs heppnaðist einstaklega vel.
Sýning Marc Jacobs heppnaðist einstaklega vel. Myndir/Getty
Bandaríski hönnuðurinn Marc Jacobs lokaði tískuvikunni í New York í gær. Þar frumsýndi hann haustlínu sína og fékk með sér mikinn fjölda af stærstu fyrirsætum heims. Einnig var fremsti bekkurinn stútfullur af stjörnum. 

Línan sjálf kom flott út og minnti helst á diskó og hip hop tímabil New York borgar á áttunda og níunda áratuginum. Sjón er söguríkari en hægt er að sjá allt það besta frá sýningunni hér fyrir neðan.






×