Glamour

Marc Jacobs býr til bol úr Instagram óhappinu

Ritstjórn skrifar
Skjáskot/Instagram
Fatahönnuðurinn Marc Jacobs byrjaðu heldur betur með látum á samfélagsmiðlinum Instagram í byrjun sumars er hann birti mynd af sínu allra heilagasta með myndatextanum "It´s yours to try!". Þess má geta að myndin átti auðvitað að fara í einkaskilaboðum og var eytt út stuttu síðar. 

Í stað þess að neita fyrir myndina og fara í vörn tæklaði Marc Jacobs málið með að vera hreinskilinn og viðurkenna að hann væri bara einhleypur maður sem daðraði á internetinu eins og aðrir. 

Nú hefur Marc Jacobs heldur betur snúið málinu sér í vil með því að hanna stuttermabol með áletruninni "It´s yours to try!" sem vísun í myndina frægu. Bolurinn er til sölu í öllum helstu verslunum kappans út um allan heim og mun vafalaust slá í gegn. 

 

 
I mean the t-shirt!! @marcjacobs Now available (THE T SHIRT!!!!) at a MARC JACOBS store near you

A photo posted by Marc Jacobs (@themarcjacobs) on Aug 26, 2015 at 6:47pm PDT


Nýtt Glamour er komið í allar helstu verslanir - tryggðu þér eintak!
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.





×