Viðskipti innlent

Már á vorfundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins

Stefán Árni Pálsson skrifar
visir/aðend/anton
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri, sótti vorfund Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) sem haldinn var í Washington í Bandaríkjunum dagana 11. til 13. apríl.

Seðlabankastjóri átti einnig fundi með stjórnendum og starfsfólki AGS og fulltrúum lánshæfismatsfyrirtækja. Þá tók seðlabankastjóri þátt í hringborðsumræðum á ráðstefnu AGS sem fjallaði um skilameðferð banka sem starfa yfir landamæri og á ráðstefnu Alþjóðasamtaka fjármálafyrirtækja sem fjallaði alþjóðlegar fjármagnshreyfingar og skuldavanda.

Á fundi fjárhagsnefndar AGS kynnti framkvæmdastjóri AGS mat sitt á helstu áskorunum varðandi hagstjórn og umbætur á heimsvísu og helstu viðfangsefni sjóðsins. Á fundinum voru lagðar fram greiningar á heimsbúskapnum og hinu alþjóðlega fjármálakerfi. Heimsbúskapurinn heldur áfram að rétta úr kútnum en áhætta er enn til staðar, svo sem mjög lítil verðbólga á evrusvæðinu og hætta á óstöðugleika á fjármálamörkuðum samfara því að dregið er úr slaka peningastefnu í Bandaríkjunum.

Fulltrúi kjördæmis Norðurlanda og Eystrasaltsríkja í fjárhagsnefnd AGS var að þessu sinni fjármálaráðherra Finnlands, Jutta Urpilainen, og má nálgast yfirlýsingu hennar fyrir hönd kjördæmisins hér að neðan.

Í ályktun fjárhagsnefndar AGS kemur m.a. fram að efnahagsleg umsvif á heimsvísu halda áfram að aukast. Hins vegar er endurbatinn brothættur og áhætta framundan.

Enn er nauðsyn á að hrinda í framkvæmd kerfisbreytingum til að viðhalda efnahagslegum endurbata og styrkja fjármálakerfi.

Nefndin lýsti áhyggjum yfir því hversu hægt hefur gengið að ljúka umbótum á skipulagi AGS sem hófust árið 2010 og miða m.a. að aukinni hlutdeild nýmarkaðsríkja í yfirstjórn AGS. Í því sambandi var vísað til mikils dráttar á staðfestingu Bandaríkjaþings.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×