Viðskipti innlent

Már, Ragnar og Friðrik hæfastir

Fanney Birna Jónsdóttir skrifar
Már Guðmundsson, Ragnar Árnason og Friðrik Már Baldursson eru hæfastir til að gegna stöðu seðlabankastjóra.
Már Guðmundsson, Ragnar Árnason og Friðrik Már Baldursson eru hæfastir til að gegna stöðu seðlabankastjóra.
Hæfisnefnd telur þrjá umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra hæfasta. Kjarninn greinir frá þessu.

Nefndin, sem fjármála- og efnahagsráðherra skipaði í lok júní og átti að leggja mat á hæfi umsækjenda um stöðuna, telur þá Friðrik Má Baldursson, Ragnar Árnason og núverandi seðlabankastjóra Má Guðmundsson hæfasta til að gegna stöðunni.

Hæfisskilyrðin til að gegna stöðu seðlabankastjóra eru að hafa lokið háskólaprófi í hagfræði eða tengdum greinum. Þá skal seðlabankastjóri búa yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahags- og peningamálum.

Samkvæmt útreikningum Kjarnans eru Friðrik, Már og Ragnar hnífjafnir í niðurstöðu nefndarinnar, fá tólf stig. Lilja Mósesdóttir fær ellefu stig ásamt Þorsteini Þorgeirssyni. Yngvi Örn Kristinsson og Ásgeir Brynjar Torfason fá níu stig.

Kjarninn segir að í niðurstöðu hæfisnefndarinnar megi greina hvar helst er gert upp á milli þremenninganna. „Friðrik Már og Ragnar hafa báðir lokið grunn og framhaldsnámi við háskóla auk doktorsprófs í greinum sem krafa er gerð um (samkvæmt lögum, innsk. blaðamanns). Már hefur sömuleiðis lokið grunn- og framhaldsnámi við háskóla sem fullnægir kröfum laganna og jafnframt lagt stund á doktorsmán um skeið. Allir búa þeir yfir víðtækri reynslu og þekkingu á fjármálastarfsemi og efnahag- og peningamálum. Már sker sig þar úr hvað reynslu af bankastarfsemi varðar vegna starfa sinna í Seðlabanka Íslands um árabil, síðustu ár sem seðlabankastjóri, auk mikilvægrar reynslu sem hann öðlaðist í starfi sínu hjá Alþjóðagreiðslubankanum í Basel í Sviss. Reynsla Friðriks Más og Ragnars á þessu sviði er einna mest af fræði-, kennslu- og stjórnunarstörfum við háskóla þar sem þeir hafa starfað um árabil. Friðrik Már býr einnig að mikilvægri reynslu af sérfræðings- og stjórnunarstörfum hjá Þjóðhagsstofnun og í stjórnun fyrirtækja. Ragnar þekkir vel til starfa Seðlabanka Íslands eftir setu í bankaráði hans undanfarin fimm ár auk fleiri stjórnunarstarfa.“

Umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra hafa frest til næsta miðvikudags til að koma á framfæri formlegum athugasemdum er lúta að hæfismati þeirra.

Umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra:

Ásgeir Brynjar Torfason

Friðrik Már Baldursson

Haukur Jóhannsson

Íris Arnlaugsdóttir

Lilja Mósesdóttir

Már Guðmundsson

Ragnar Árnason

Sandra María Sigurðardóttir

Yngvi Örn Kristinsson

Þorsteinn Þorgeirsson

Nefndina um hæfi umsækjenda um stöðu seðlabankastjóra skipuðu þau Guðmundur Magnússon, fyrrverandi rektor Háskóla Íslands, Ólöf Nordal, fyrrverandi varaformaður og þingmaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi formaður bankaráðs Seðlabankans, og Stefán Eiríksson lögfræðingur og lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu.


Tengdar fréttir

Embætti Seðlabankastjóra laust til umsóknar

Fjármála- og efnahagsráðherra tilkynnti í febrúar síðastliðnum að endurskoðun laga um Seðlabanka Íslands stæði fyrir dyrum og var stofnaður starfshópur í kjölfarið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×