Mao-iðnaður fyrir Ólympíuleika 31. júlí 2008 22:30 MYND/AFP
Heilmikill Mao-iðnaður er orðinn til fyrir Ólympíuleikana sem hefjast í Kína eftir rúma viku. Þessi fyrrum æðsti leiðtogi Kína nýtur enn mikillar hylli meðal Kínverja og nú er arfleifð hans og ímynd meðal þess helsta sem ferðamenn í Kína sækja í. Fréttastofa beinir kastljósinu að Kína í dag og næstu daga í aðdraganda Ólympíuleikanna. Maó-iðnaðurinn er hvergi meira áberandi en í Hunan, heimahéraði formannsins. Utan Kína er Maós helst minnst sem harðstjóra sem ber ábyrgð á dauða og hörmungum milljóna manna sem liðu fyrir Menningarbyltinguna miklu og Stóra framfaraskrefið - iðnvæðingu þessa stórveldis. Í Hunan er þessu farið á annan veg. Þangað koma árlega rúmlega þrjár milljónir manna í einskonar pílagrímsferðir til að skoða smábæinn Shaoshan þar sem hann ólst upp - þeir skoða húsið sem hann fæddist í, skólann sem hann gekk í og staði þar sem hann lék sér sem lítill drengur. Í Shaoshan hans sjá menn enga ástæðu til annars en að halda nafni formannsins á lofti. Þar eru mörg söfn tileinkuð honum og allir þeir sem bera ættarnafnið Maó gera það með stolti. Í þeirra augum var Maó ekki aðeins stofnandi alþýðulýðveldisins, heldur maðurinn sem frelsaði landið undan oki keisaraveldisins, spillingar og eymdar, og gerði Kína að því stórveldi sem það er nú. Og þótt ef til vill megi kenna landbúnaðarstefnu Maós um að milljónir manna liðu stórkostlegan skort eða týndu lífi, þá njóta núlifandi íbúar arfleifðarinnar - 85% af öllum tekjum Shaoshan koma nú frá Maó-túristunum. Andlit hans er þar á öllum mögulegum og ómögulegum stöðum og varningi á líflegum útimörkuðum. Á þessu vasaúri segir til dæmis að félagi Mao ze-döng verði um eilífð í hjörtum alþýðunnar. Og ef ekki væri fyrir formanninn, þá væru flestir þessara kaupmanna sjálfsagt að strita á svínabúum eða ökrum, eins og flestir gera í nágrannabæjunum - og eins og forfeður þeirra hafa gert mann fram af manni.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Erlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Sjá meira